Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri við Hafnarskóla
Kennarar í Hafnarskóla eru komnir til starfa og farnir að undirbúa vetrarstarfið. Við skólann starfa 19 kennarar auk 8 annarra starfsmanna. Þórgunnur Torfadóttir er nýráðinn skólastjóri við Hafnarskóla en hún hefur verið aðstoðarskólastjóri þar síðan 1998. Eygló Illugadóttir sem er nýr aðstoðarskólastjóri við skólann er líka öllum hnútum kunnug. Hefur starfað þar síðan 1989. Arnbjörg Stefánsdóttir sem hefur verið skólastjóri síðastliðin 5 ár flutti sig um set og hefur tekið við stöðu aðstoðarskólastjóra við Brekkubæjarskóla á Akranesi. Á morgun, miðvikudag, munu kennarar Hafnar- og Nesjaskóla vera á námskeiði hjá Jóhanni Inga Gunnarssyni sálfræðingi sem heitir Samskipti og liðsheild. Á mánudag munu svo kennarar Hafnarskóla sitja námskeið í Stundvísi að lokinni skólasetningu.
Í vetur verða um 95 nemendur í Nesjaskóla, og tæplega 140 nemendur bæði í Hafnarskóla og Heppuskóla.





Skrifa athugasemd