Skólinn fer að byrja
Nú fara skólarnir að byrja og krakkarnir byrjaðir að dusta rykið af skólatöskunni og gera allt klárt. Skólavörurnar eru komnar fyrir nokkru í 1011 í Miðbæ og margir byrjaðir að versla inn skóladótið. Grunnskólarnir hafa gefið út innkaupalista sem hægt er að nálgast hér á vefnum. Næstkomandi mánudag 22. ágúst verða skólasetningar í Nesjaskóla, Hafnarskóla, Heppuskóla og Grunnskólanum Hofgarði. Kennsla mun síðan hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst. Skólabílarnir aka ekki á skólasetningardegi en hefja akstur á þriðjudeginum. Skólasetningin í Hrollaugsstaðrskóla verður föstudaginn 22. ágúst. Í Hafnarskóla verður boðið upp á lengda viðveru fyrir nemendur í 1. - 4. bekk með sama hætti og undanfarin ár. Fimm daga vikunnar geta nemendur dvalið í lengdri viðveru allt til kl. 17:00. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð og gjaldskrá í afgreiðslu sveitarfélagsins eða hér á vefnum. Þeim má síðan skila í Hafnarskóla.
Nákvæmar tímasetningar skólasetningar:
Mánudagur 22. ágúst
Nesjaskóli kl. 10:00
Hafnarskóli kl. 11:00
Heppuskóli kl. 11:00
Grunnskólinn í Hofgarði kl. 16:00
Föstudagur 26. ágúst
Hrollaugsstaðaskóli kl. 14:00.





Skrifa athugasemd