Ágúst
Mastrið
Mastrið
Gísli Reynis
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

11.08.2005 Ágúst

Mastursmenn halda áfram að klífa Mastrið

Nú hafa 8. og 9 þáttur af Mastrinu verið settir á vefinn. Mastursmenn halda áfram að klífa Mastrið og eru farnir að nálgast toppinn enda bara einn þáttur eftir. Í 8. þættinum sýnir Gunnar fréttastjóri hver ræður og sér til þess að Mastrið standi hátt og tignarlegt sem aldrei fyrr. Boltanum er rúllað til Gísla þar sem hann fær til sín Frikka rokkara í sófann, en hann hafði meðferðis gítar og magnara. Frikki stelur hverri senunni af fætur annarri með ótrúlegu gítarspili í sófanum. Frikki opnar sig fyrir áhorfendum og tjáir þeim að hann hafi alltaf ætlað að vera dýralæknir. Gunnar og Sindri skella sér í veiðiferð og hitta þar fyrir tvo unga og bráðefnilega fiskimenn sem kenna þeim réttu tökin á veiðistönginni og segja sannar veiðisögur. Gunnar sendir Gísla alla leið í höfuðborgina til að taka brottflutta Hornfirðinga í létt spjall og komast m.a að því hvort þeir telji sig ennþá vera Hornfirðinga.

Golfið er auðvitað á sínum stað með fögrum golfkennslumanninum á fögrum Silfurnesvellinum. Þetta efni og mun meira fyllir 8.þátt af Mastrinu sem engin ætti að láta framhjá sér fara.
Svo er það 9. þátturinn sem var sendur út í vikunni og var hann ekki af verri sortinni, enda strákarnir orðnir vel skólaðir í sínum fræðum. Gunnar Auðunn skýrir frá helstu fréttum og samfélagslegum áhyggjuefnum liðinnar viku. Gísli hlunkast í sófann eins og vanalega og fær til sín athafna og orkuboltann Gunnar Inga og ræða þeir um heima og geima og allt þar á milli. Íþóttirnar eru með léttari bragði en vanalega og lýtur út fyrir að íþróttafréttamaðurinn sé ekki með öllum mjalla í flutningi sínum á íþróttafréttunum. Í Golfhorninu sjáum við hvað starfsmenn golfvallarins þurfa m.a að hugsa um, golfið alltaf ferskt, svo fer Gísli á vappið til Reykjavíkur og tekur brottfluttan Hornfirðing í viðtal, þetta og eitthvað fleiri í Mastrinu þessa vikuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica