NorðurÍss komin til að vera
Bragðefnavinnsla NorðurÍss hf. í gömlu mjólkurstöðinni virðist komin til að vera. Fyrirtækið hefur einbeitt sér að sölu bragðefna í Bandaríkjunum og eru komnir með viðskiptavini allt frá New Englands svæðinu á austurströndinni til Kaliforníu á vestur ströndinni og frá Chicago í norðri til Texas í suðri. Þó venjan sé að senda bragðefnin með skipi, nýtti NorðurÍs sér nýju flugleið Icelandair til San Franciso, til að koma bragðenfum til viðkiptavinar, sem ekki gat beðið eftir seinfarnari flutningsleiðum. Strax að loknum sumarleyfum þegar starfsemin hefst þann 22. ágúst nk. fer framleiðslan á fullan skrið, til að framleiða upp í pantanir frá viðskiptavinum sem staðsettir eru allt frá Kaliforníu til Spánar.
Að sögn Halldórs Árnasonar framkvæmdarstjóra NorðurÍss þá verða í vetur 6-7 störf hjá fyrirtækinu. Þar af verða 4-5 störf á Hornafirði, eitt í Bandaríkjunum og annað í Reykjavik. Þess má geta að fyrirtækið er þessa stundina að bæta við sig mannskap og er áhugasömum bent á að hafa samband við Helgu Boggu í síma 894 0216.





Skrifa athugasemd