Ágúst
Vitin
Vitin
Færeyska skipið Vitin lestaði eitt þúsund tonnum af steypumöl
Mynd 2 af 2
1 2

08.08.2005 Ágúst

Lestaði eitt þúsund tonnum af steypumöl

Færeyska skipið Vitin kom til Hornafjarðar fyrir helgina og á laugardaginn lestaði það eitt þúsund tonnum af steypumöl sem fer til Reyðarfjarðar. Þetta er steypumöl sem dælt var upp úr Hornafjarðarós við síðustu dýpkun þar og var henni dælt upp á svæði við Óslandsbryggjuna. Vignir Júlíusson segir að hér sé um prufusendingu að ræða til MB Vallá sem síðan metur gæði efnisins og styrkleika. Algjör skortur er á nógu harðri möl á austfjörðum þ.e. eins og nota þarf í byggingaframkvæmdirnar á Reyðarfirði og hefur mölin sem notuð er verið flutt frá Noregi.

Nú verðum við bara að bíða og sjá hvort þetta er það sem hentar í álverið og hvort hér er rétti grófleikinn á mölinni sagði Vignir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica