Ágúst
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal
Mynd 2 af 3
1 2 3

05.08.2005 Ágúst

Unglingalandsmót UMFÍ á Hornafirði árið 2007

Um nýliðna verslunarmannahelgi var haldið unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal. Þetta mót er haldið ár hvert og sóttust Ungmennasambandið Úlfljótur og Sveitarfélagið Hornafjörður eftir því að fá að halda það árið 2007. Við setningu mótsins í Vík tilkynnti Björn B. Jónsson formaður UMFÍ að unglingalandsmótið 2007 yrði haldið á Hornafirði. Þetta er mikið gleðiefni fyrir íþrótta- og fjölskyldufólk á Hornafirði því mótið snýst ekki bara um keppni heldur er þetta líka fjölskylduhátíð þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Ljóst er að þetta verður eitt stærsta verkefni sem Hornfirðingar hafa tekið sér fyrir hendur því keppendur eru rúmlega þúsund og gestir mótsins hafa verið á bilinu 8000 - 12000. Undirbúningur hefst strax í þessum mánuði en þá verður stofnuð undirbúningsnefnd sem í sitja bæði fulltrúar frá USÚ og Sveitarfélaginu ásamt einum fulltrúa frá UMFÍ.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica