Ágúst
Freysnes
Freysnes
Freysnes

04.08.2005 Ágúst

40% aukning í gisti- og veitingaþjónustu í Freysnesi

Mikil aukning hefur verið í gisti- og veitingaþjónustu í Freysnesi í sumar, fullbókað í ágúst og vel lítur út með haustið. Sömu sögu er að segja frá söluskálanum í Freysnesi þar er um 40% aukning. Mikil og jöfn umferð hefur verið í sumar og engin fækkun erlendra ferðamanna eins og sumir ferðaþjónustuaðilar hafa kvartað yfir. Jón Benediktsson í Freysnesi segir að fjöldi gesta hjá þeim um verslunarmannahelgina hafi verið svipaður og undanfarnar helgar og nokkuð af gestum verið á tjaldstæðinu við Freysnes. Um 25 manns vinnur við hótelið yfir sumarið og í sumar hafa m.a. starfað þar fólk bæði frá Frakklandi og Þýskalandi og hafa sumir þeirra unnið þar áður og segir Jón að þetta sé allt hörkuduglegt og hreint frábært starfsfólk sem unnið hafi á hótelinu í sumar.

Núna er verið að byrja á lagningu vegar að sumarbústaða svæði sem búið er að skipuleggja sunnan við tjaldsvæðið í Freysnesi. Þetta er á fallegu kjarrvöxnu svæði sem efalaust verður vinsælt sumarbústaðaland og er þegar farið að taka frá lóðir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica