Ágúst
Drengur Óli Þorsteinsson
Drengur Óli Þorsteinsson
Drengur Óli Þorsteinsson verslunarstjóri Portus.is

03.08.2005 Ágúst

Ný hornfirsk vefverslun með hljómtæki

Opnuð hefur verið hornfirsk vefverslun með hljómtæki, Portus.is. Portus ehf. sem rekur Portus.is er í eigu þeirra Drengs Óla Þorsteinssonar og Jónu Bennýjar Kristjánsdóttur og eru þau bæði búsett á Hornafirði. Drengur Óla, verslunarstjóri Portus.is, segir að hér sé á ferðinni milliliðalaus innflutningur á hljómtækjum og vörum þeim tengdum á betra verði en Íslendingar eiga að venjast. Til að byrja með mun allur daglegur rekstur fyrirtækisins fara fram á Hornafirði þó svo að lager fyrirtækisins sé geymdur á Akureyri en í haust ætla þau að opna verslun með hljómtæki á Akureyri.


Til gamans má geta þess að Portus er latína og þýðir höfn. Hægt er að nálgast vefverslunina á vefslóðinni http://www.portus.is eða hafa samband í síma 892 0965.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica