Ríki Vatnajökuls - Júlí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Flugeldasýningin á Jökulsárlóni 13. ágúst
      <description>Flugeldasýningin sem haldin hefur verið árlaga á Jökulsárlóni um Verslunarmannahelgina verður seinkað um tvær vikur og mun fara fram laugardagskvöldið 13.ágúst n.k. Einar Björn Einarsson staðarhaldari á Jökulsárlóni segir tvær megin ástæður fyrir breytingu á tímasetningunni, í fyrsta lagi þá gefst þeim sem leggja land undir fót um Verslunarmannahelgina  kostur á að mæta og svo hin ástæðan sem er að hægt verður að byrja sýninguna fyrr um kvöldið en undanfarin ár hefur hún byrjað á miðnætti. Það munar um tvær vikur hvað dimmir fyrr segir Einar Björn.</description>
2119...eða hvað?
      <description>Á morgun þriðjudaginn, 26. júlí munu Landmælingar Íslands í samvinnu við Landhelgisgæsluna og Jarðvís-indastofnun Háskóla Íslands hefja mælingar á hæð Hvannadalshnúks, hæsta tinds landsins. Flogið verður með mælitæki upp á Hvannadalshnúk þar sem þau munu safna gögnum í tvo sólarhringa áður en þau verða sótt aftur. Í sömu ferð verður einnig komið fyrir mælitækjum á tveimur öðrum stöðum í nágrenni hnúksins til að fylgjast með hreyfingum jarðskorpunnar undir Öræfajökli. Þegar tækin hafa verið tekin niður hefst úrvinn-sla gagna og munu niðurstöður mælinganna liggja fyrir í byrjun ágúst og þá verði skorið úr um hæð Hvan-nadalshnúks.
|nl|</description>
Lenti í miklu brimi við Hornsvík
      <description>Kjartan lagði af stað frá Hornsvík kl. 13:30 í dag í miklu brimi eins og meðfylgjandi myndir sýna sem Sigurjón Björnsson tók þar. Miklir og erfiðir straumar voru til þess að hann átti í erfiðleikum með að komast af stað en allt auðvitað hafðist þetta með seglunni sem ekki er skortur af hjá róðrarkappanum. Þannig var þetta alla leiðina til Hafnar sem var í fylgd með Birni Lóðs Ósinn síðasta kaflann. Kjartan kom til Hafnar kl. 15:23. Fjöldi manns sigldi á móti honum þar á meðal þeirra var bæjarstjórinn Albert Eymundsson. Nú mun Kjartan safna kröftum fyrir erfiðasta kaflann sem er framundan.</description>
Hjóla frá Reykjavík til að taka þátt í Frönskum dögum
      <description>Á þriðjudagskvöld kom til Hafnar 5 manna hópur hjólreiðamanna sem eru að hjóla frá Reykjavik til Fáskrúðsfjarðar til að taka þátt í Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði sem fara fram næstu helgi. Ferðalangarnir eru frá 11 til 53 ára, allir  Fáskrúðsfirðingar sem búa bæði á Fáskrúðsfirði og höfuðborgarsvæðinu. Ferðin er farin í 8 áföngum, þ.e ferðin frá Reykjavík til Fáskrúðsfjarðar farin á 8 dögum. Hver áfangi ferðarinn er frá 70-115 km. Síðasti áfanginn áður en til Hafnar var komið var frá Hofi í Öræfum til Hafnar sem eru 110 km. Hópurinn gisti á tjaldstæðinu á Höfn og hét þaðan í gær til Djúpavogs.</description>
Verslunarmannahelgin framundan
      <description>Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar og Ungmennasambandið Úlfljótur hvetur hornfirskar fjöldskyldur til að leggja leið sína á Unglingalandsmótið í Vík í Mýrdal um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin hafa verið haldin undanfarnar verslunarmannahelgar, verið fjölsótt og tekist einstaklega vel. Þetta eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 til 18 ára eru í aðalhlutverkum, koma saman til að keppa í íþróttum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá landsmótsins. Verið er að skrá börn og unglinga sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttakeppni á landsmótinu á skrifstofu U.S.Ú. Hafnarbraut 25, Sindrahúsinu á miðvikudögum fram að landsmóti á milli 16:30 og 17:30.</description>
Verða betri með hverri vikunni
      <description>Þættirnir eru orðnir sjö talsins og verða betri með hverri vikunni. Gunnar fréttastjóri stjórnar sínum mönnum eftir bestu getu og sendir boltann viðstöðulaust úr stjórastólnum til strákanna sinna, einnig heldur hann fólkinu á tánum með nýjustu og heitustu fréttum liðinnar viku. Gísli Reynis fær veitingamanninn, hótelrekandann og nafna sinn Vilhjálmsson í sófann til sín og "tjatta" þeir á fis-léttum nótum í þetta skiptið, sófinn sjaldan verið jafn mjúkur og vinalegur og þessa vikuna. Hornfirðingur vikunnar birtist aftur á skjáinn og það með miklum látum. Golfhorn Steinars er með öðruvísi sniði en vanalega og er alveg þess virði að fylgjast með hvernig hann miðlar golf-reynslu sinni til ykkar, áhorfendur góðir. Gísli tekur upp þráðinn þar sem hann skildi hann eftir í síðustu viku og slær á þráðinn til Óla Vignis sem búsettur er í höfuðborginni, þeir spjalla um allt sem skiptir engu máli. Allt þetta og mun meira í 7.þætti af Mastrinu.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
Þokan svo þykk að ekki væri hægt að sjá andlit sitt í spegli
      <description>Kjartan Jakob Hauksson sem lagði af stað á árabáti frá Bolungarvík í byrjun júní á ferð sinni hringinn í kringum landið. Að sögn Arndísar Guðmundsdóttur, kynningar- og félagsmálafulltrúa Sjálfsbjargar þá hefur ferðin gengið mjög vel og er hann nú staddur á Djúpavogi. Við komuna til Djúpavogs þá mætti honum þykk þoka, eins og Kjartan komst að orði í viðtali við Hemma Gunn þá var hún svo svört að hann hefði ekki séð andlit sitt í spegli. Næsti viðkomustaður er Höfn í Hornafirði og er áætlaður komutími annað kvöld. Komutíminn mun verða auglýstur nánar á SkjáVarpi svo Hornfirðingar geti tekið á móti honum við komuna til Hafnar. Kjartan lagði upp frá Reykjavík þann 21. ágúst 2003 en ferðinni lauk með brotlendingu í Rekavík, norður af Bolungarvík 7. september sama ár. Kjartan hélt áfram þar sem frá var horfið á nýjum báti og má búast við að róin vegalengd verði u.þ.b. 3000 km leið.</description>
Stóðu sig mjög vel á UÍA mótinu
      <description>Um síðustu helgi var haldið UÍA mót í frjálsum íþróttum á Egilsstöðum. 10 krakkar fóru frá Hornafirði og kepptu fyrir hönd Sindra og stóðu þau sig öll mjög vel. Keppendur sem voru 10 ára og yngri fengu allir þáttökuverðlaun.  Hinir eldri sem fengu ekki verðlaun stóðu sig einnig mjög vel og voru ekki langt frá verðlaunasætum. Fannar Blær Egilsson náði 1. sæti í Eiðahlaupinu sem er 12,5 km og var hann jafnframt yngsti keppandinn í hlaupinu. Fannar lenti einnig í 3. sæti í boðhlaupi 13 til 14 ára ásamt Júlían bróðir sínum og tveim keppendum úr Mána.  Júlían lenti í 2. sæti í hástökki 11-12 ára, 3. sæti í langstökki 11-12 ára, 3. sæti í 800 m hlaupi 11-12 ára og 3. sæti í boðhlaupi 13-14 ára.</description>
6. þáttur Mastursins kominn á netið
      <description>Í þættinum fær Gísli Reynis athafnakonuna Sigrúnu Kapítólu í sófann hjá sér og spjalla þau um mál sem snerta alla bæjarbúa. Spurning vikunnar er á sínum stað og virðist vera sem að Davíð Oddsson sé kyssilegri maður en kollegar hans þeir Halldór Ásgrímsson og Össur Skarphéðinsson. Steinar gerir greinargóð skil á íþróttafréttunum og kennir stutta spilið í dag í Golfhorninu. Gunnar greinir frá helstu fréttum liðinnar viku og stjórnar þættinum úr studioinu sem er staðsett utandyra. Gísli Reynis bryddar uppá nýjung og tekur Ólaf Pál Vignisson í símaviðtal, þar sem m.a kemur fram að hann hafi hitt á Eric Clapton og sé nýbakaður faðir.</description>
      <alt>Gísli Reynis</alt>
Strandgöngumaðurinn boðinn velkominn til Hornafjarðar
      <description>Jón Eggert Guðmundsson strandgöngumaðurinn var boðinn velkominn af Alberti Eymundssyni bæjarstjóra, Guðnýju Jensdóttur og Björgu Svavarsdóttur frá Krabbameinsfélag Suðausturlands við Lónsafleggjarann um hádegisbilið í dag. Jón er 37 ára líffræðingur og kerfisfræðingur lagði af stað í gönguna frá Vogum á Vatnsleysuströnd 17. júní s.l. og hefur gengið eftir strandvegum. Jón er nú tæplega hálfnaður á strandgöngu sinni þetta árið sem mun enda á Egilsstöðum síðar í þessum mánuði. Að hans sögn þá hefur gangan heppnast mjög vel, gott veður á leiðinni og ökumenn mjög tillitssamir. Félagi Jóns, Sigfús Austfjörð er með Jóni í þessari ferð sem sérlegur aðstoðarmaður og ekur hann á eftir í hæfilegri fjarlægð.</description>
Áfram Sindri, áfram Sindri
      <description>Það er búið að vera mikið um að vera hjá Knattspyrnudeild Sindra undanfarið. Ef byrjað er á meistaraflokk karla þá hafa þeir heldur betur verið að sækja í sig veðrið og eru nú búnir að titla sér uppá topp í sínum riðli með 5 sigurleikjum í röð. Núna síðast unnu strákarnir Ými frá Kópavogi 3-0 þar sem Kristinn Þór skoraði 2 og Steinar 1 og lagði upp hin tvö. Steinar er markahæsti maður Sindra og riðilsins og skoraði hann sína fyrstu þrennu á ferlinum núna um daginn gegn Árborg á Selfossi í 3-1 sigurleik gegn þeim. Sindri hefur fengið fæst mörk á sig í sumar og skorað 16 sem segir okkur það að Steinar hefur skorað helming marka Sindra. Næsti leikur hjá strákunum er næstkomandi föstudag í Vestmannaeyjum gegn sterku liði KFS.</description>
Heilbrigðisstofnun fær höfðinglega gjöf
      <description>Í gær fékk Heilbrigðisstofnun Suðausturlands höfðinglega gjöf þegar Jón Benediktsson gaf stofnunnin ómtæki til mæla þvagmagn í blöðru. Tækið kostaði um 800 þúsund krónur. “Þetta er höfðingleg gjöf og er til mikilla þægina því nú þarf ekki lengur að  setja upp þvagleggi og mæla þvagmagn með þeim hætti sagði Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri HSSA.</description>
Mikil aukning í ferðaþjónustunni í júní.
Truflun á flugi til Hafnar vegna þoku
      <description>Rask hefur orðið á flugi Landsflugs vegna veðurs til Hornafjarðar. Flugi til Hornafjarðar var snúið til Egilstaða í morgun vegna þoku og bíður flugvélin þess að þokunni létti til að koma farþegum á áfangastað. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá eru Veðurhorfur til kl. 18 á morgun suðvestan og sunnan 5-10 m/s og súld, en 8-13 í kvöld og rigning. Suðvestan 8-13 m/s á morgun og skúrir, en skýjað með köflum austantil. Hiti verður á bilinu 11 til 16 stig.</description>
Gott atvinnuástand á Hornafirði
      <description>Atvinnuástand á Hornafirði hefur verið gott það sem af er þessu ári og vantar fólk í ýmiskonar störf. Listi atvinnulausra er í algjöru lámarki en þar eru átta skráðir flest konur. Þorkell Kolbeins hjá Vökli stéttarfélagi segir að þetta sé fólk sem ekki komist í algeng störf eða geti aðeins unnið einhver hlutastörf og hann segir að svona listar tæmist nánast aldrei. Mikil eftirspurn hefur verið eftir starfsfólki í sumar,  mun meira en verið hefur undanfarin ár. 
|nl|Líkt og var hér áður fyrr fengu 30 unglingar vinnu í humrinum hjá Skinney Þinganesi. Í bæjarvinnunni, vinnuskólanum, eru 40-50 unglingar sem er um helmingi færri  en voru í fyrra  og það hefur þau áhrif að krakkarnir fá vinnu allan daginn og einhverjir þeirra hafa farið í aukavinnu eftir bæjarvinnuna.</description>
Bílarnir eru að verða flottari og frumlegri
      <description>Kassabílarall Landsbanka Íslands var haldið að vanda á Humarhátíð, var þetta í 8. skiptið sem rallið er haldið. Keppnin var mikil og erfitt að velja því bílarnir eru alltaf að verða flottari og frumlegri. Aðeins voru færri bílar en frá árinu 2004 en alls tóku 13 bílar þátt en voru 19 í fyrra. Fyrstu verðlaun hlutu Kristófer Hansson og Kristinn A Lúðvíksson með tímann 19,79 sek., önnur verðlaun hlutu  Hannes Halldórsson og Eggert H Þórhallsson með tímann 20.16 sek.,og þriðju verðlaun hlutu Þorgils Snorrason og Jón páll Sveinsson með tímann 20.20 sek. Farandbikar fyrir flottasta bílinn hlutu Jón Bjarni Sindrason og Kolbrún Lilja Skúladóttir á Jöklajeppa-bíl, settur saman úr tveim hjólbörum.</description>
Hlauparar Vinahlaupsins komu til Hafnar í gærkvöldi
      <description>Um átta leitið í gærkvöldi komu hlauparar alþjóðlega Vináttuhlaupsins ,,World Harmony Run" til Hafnar. Lögreglan á Höfn ók á undan hópnum síðasta spölinn. Hlauparar úr Nesjum bættust í hópinn á Mýrum og hlauparar frá Höfn bættust í hópinn á Fljótaveginum. Einn þátttakandi Fannar Blær Egilsson þótti standa sig mjög vel en hann hljóp hvíldarlaust  frá  Fljótaveginum til Hafnar. Hlaupið endaði við Sundlaug Hafna,  þegar krakkarnir og hlaupararnir voru búnir að kasta mæðinni þá tóku hlaupararnir lag vinátuhlaupsins fyrir þátttakendurna frá Höfn, Nesjum og þá áhorfendur sem komnir voru að sundlauginni til að taka á móti Hópnum.</description>
      <alt>Hlaup</alt>
Hve gamall er Hornafjörður?
      <description>Páll Imsland jarðfræðingur heldur erindi á vegum jöklasýningarinnar: Hve gamall er Hornafjörður? Erindið verður haldið í ráðstefnusal Nýheima miðvikudaginn 6. júlí og hefst klukkan 20:30 Hornafjörður er yngri en hingað til hefur yfirleitt verið talið. Í erindinu er fjallað um ísaldarlok á Íslandi með sérstakri áherslu á Suðausturland, þar sem aðstæður voru öðruvísi en annars staðar á landinu. Dregin verður upp mynd af þessum öðruvísi aðstæðum og afleiðingum þeirra á svæðinu sem meðal annars setja aldri Fjaranna og strandlónanna, sem mynda Hornafjörð og önnur sambærileg fyrirbæri á Suðausturlandi, aldurstakmörk.</description>
5. flokkur Sindra Esso meistari
      <description>Nýliðna helgi fór fram 19. Essómót á Akureyri. Nokkuð stór hópur Sindramanna og aðstandanda þeirra streymdu norður yfir heiðar til að taka þátt. Sindri var með 2 lið, A og E. Bæði lið náðu nokkuð góðum árangri í sínum riðlum en það má þó segja að árangur E-liðsins hafi toppað þessa fínu helgi. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu alla leikina sína nema einn en þá gerðu þeir jafntefli. Spennan var gríðarleg fyrir úrslitaleikinn, á móti Breiðablik, bæði hjá strákunum og aðstandendum. Leikurinn fór fjörlega af stað, sótt á báða bóga en ekkert var skorað í venjulegum leiktíma. Og þá varð að ljúka leiknum með vítaspyrnukeppni. Og þá fyrst hófst nú spennan.</description>
Mastrið fær mjög jákvæðar undirtektir
      <description>Sjónvarpsþátturinn Mastrið sem er sýndur á Skjávarpinu á mánudagskvöldum kl. 20 hefur fengið mjög jákvæðar undirtektir og kemur þátturinn skemmtilega á óvart. Þættirnir sýna að  ýmislegt er hægt að gera í heimabyggð þegar viljinn er fyrir hendi. Aðstandendur þáttanna þeir Gunnar,Gísli Örn, Sindri, Steinar og Sævar eiga virkilega hrós skilið fyrir framtakið og ekki síst fyrir það að þarna eru þeir að taka á ýmsu í bæjarlífinu, tala við fólk í atvinnulífinu, unga fólkið, forráðamenn bæjarfélagsins og t.d var viðtal Gísla við Albert bæjarstjóra í síðasta þætti mjög áhugavert. Gísli sagði að smá tæknivandamál hefðu verið hjá þeim en vonandi yrðu þau úr sögunni áður en næsti þáttur verður sýndur þar sem þeir voru að fá nýjan tækjabúnað. Fyrirtækið Opin Kerfi sem er umboðsaðili Hewlett Packard (HP) á Íslandi styður þetta framtak strákanna með því að lána þeim nýjan tölvubúnað endurgjaldslaust.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
Fór holu í höggi á Humarhátíðargolfmótinu um helgina
      <description>Hið árlega Humarhátíðarmót fór fram á Silfurnesvelli um helgina á laugardeginum í mjög góðu veðri ,,mótið slapp á milli skúrana” eins og Guðný Helgadóttir formaður Golfklúbbsins komst að orði. Mótið hófst um morgunninn og var því lokið um tvö leitið. Alls voru það 34 sem tóku þátt í mótinu en auk heimamanna komu þátttakendur víða að til að taka þátt í mótinu, bæði gestir sem voru hér staddir á tjaldstæðinu og gestir heimamanna yfir Humarhátíðina. Haraldur Jónsson frá Golfklúbbi Hornafjarðar fór holu í höggi á 3 braut sem hlýtur að vera draumur hvers kylfings. Eins og undanfarin ár þá voru verðlaunin úrvals humar í boði Skinneyjar-Þinganess. Eftir mótið var boðið upp á humarsúpu og brauð sem fór mjög vel í þátttakendur.</description>
Páll Hermannsson frá Reykjavík heimsmeistari
      <description>Níunda heimsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna fór fram á Humarhátíð að vanda. Keppt er um vegleg verðlaun ásamt humarskálinni sem heimsmeistarinn varðveitir til næsta móts. Keppendur voru 120 og eftir spennandi úrslitakeppni stóð Páll Hermannsson frá Reykjavík uppi sem heimsmeistari. Heimamenn hafa hampað titlinum ef undan er skilið fyrsta mótið en nú komst enginn heimamaður í þriggja manna úrslitin. Í öðru sæti var Sigríður Blöndal frá Reykjavík og þriðja var Dagný Sverrisdóttir frá Stöðvarfirði. Á næsta ári verður tíunda heimsmeistaramótið haldið og af því tilefni hyggst útbreiðslustjórinn gera átak til að auka vinsældir mótsins enn frekar. Næsta mót í Hornfjarðarmanna verður í desember og þá verður keppt um Hornafjarðarmeistaratitilinn og síðan á þorranum verður Íslandsmeistaramótið í Reykjavík.
|nl|</description>
Hlaupararnir koma til Hafnar annað kvöld
      <description>Alþjóðlega Vináttuhlaupið „World Harmony Run” er nú í fullum gangi víða um heim og kom það til Íslands s.l. laugardag. Vináttuhlaupið sem er 40.000 km. kyndlahlaup hófst í New York 16. apríl síðastliðinn og verður kyndillinn borinn á milli 70 landa í öllum heimsálfum til að efla vináttu, skilning og umburðalyndi. Íslandshluti Vináttuhlaupsins hófst laugardaginn 2. júlí, kl.10 við Höfða.  Það  var forseti  borgarstjórnar, Alfreð Þorsteinsson, sem  tendraði  kyndilinn. Þaðan var svo hlaupið með logann og verður hlaupið hringinn í kringum landið, alls 1534 km í 15 daga. Öllum er velkomið að slást í hópinn með hlaupurunum sem koma til Hafnar um kvöldmatarleytið á þriðjudag og hlaupa þaðan aftur kl. 9:00 á miðvikudagsmorgun.</description>
      <alt>Vináttuhlaupið</alt>
Viðgerð á ljósleiðara dregst vegna aurskriða
      <description>Ljósleiðari Símans rofnaði um hádegið í dag að því er talið er vegna aurskriðu á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.Útsending Ríkisjónvarpsins, Bylgjunnar og FM957 hefur legið niðri á Höfn í dag. Einnig hefur útsending Stöðvar 2 og Skjás Eins legið niðri í dag. Bilunin hefur engin áhrif á talsímasamband Símans á þessu svæði. Rofið hefur einnig áhrif á gagnaflutninga á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Djúpavogi og GSM samband á Fáskrúðsfirði.  Enn er leitað leiða til að tengja sambönd um aðrar leiðir. Viðgerð á ljósleiðaranum mun eitthvað  dragast vegna gífurlegra rigninga.</description>
      <alt>Höfn</alt>
Hjálpuðu fólki að ganga frá tjöldum og farangri
      <description>Björgunarsveitarmenn á Hornafirði aðstoðuðu í morgun fólk sem var í tjöldum á tjaldsvæðinu á Höfn við að taka búnað sinn saman. Mikil rigning og nokkuð hvasst  var í morgun svo við hjálpuðum fólki að ganga frá tjöldum og farangri og það gekk allt alveg ljómandi vel sagði Sveinbjörn Steinþórsson björgunarsveitarmaður, síðan var fólkinu boðið að koma í íþróttahúsið fá heita súpu, fara í þurr föt og hlýja sér og voru allmargir sem nýttu sér það boð. Fellihýsa- og húsbíla fólki sem hugði til hreyfings í morgun, var ráðlagt að hinkra aðeins við þar til vindur gengi niður, einkum þeim sem voru á austurleið  þar sem ferðaveður var slæmt austan Hafnar. Vegagerðin hefur í morgun og dag verið með vakt við Þvottár- og Hvalnesskriður sem alltaf eru varhugaverðar í svona veðri en að sögn Reynis Gunnarssonar hjá Vegagerðinni hafði ekki hrunið mikið úr skriðunum í dag og vegurinn vel fær.</description>
Björgunarsveitin kölluð út í gær
      <description>Björgunarsveit Hornafjarðar var kölluð út í gær til leitar að manni sem ætlaði að ganga á tind Ketillaugarfjalls í Nesjum. Haft var samband við björgunarsveitina um kl 14 og hún beðin um að leita mannsina þegar hann var ekki kominn heim á tilteknum tíma. Björgunarsveitarmenn fundu manninn látinn efst í fjallinu þar sem hann hafði hrapað. Ekki er ljóst hvort maðurinn hefur fengið aðsvif og fallið af þeim sökum.</description>
Starfsemi Háskólasetursins á Hornafirði dafnar
      <description>Ársskýrsla Háskólasetursins á Hornafirði lítur nú dagsins ljós í annað sinn. Setrið tók til starfa vorið 2002 og árið 2004 er því annað fulla starfsár þess. Á þessum árum hefur starfsemin dafnað og stoðir hennar styrkst. Þrjú ár eru stuttur tími í lífi seturs sem þarf að afla fjár til verkefna að miklu leyti með styrkjum úr samkeppnissjóðum, slík verkefni tekur tíma að byggja upp. Á árinu rúmlega þrefölduðust sértekjur Setursins, úr um 750 þúsund krónum árið 2003 í um tvær og hálfa milljón króna á árinu 2004. Fyrirséð er að á árinu 2005 munu sértekjur þess aukast enn. Frá upphafi hefur forstöðumaður verið eini fasti starfsmaður Háskólasetursins, en í lok árs 2004 bættist annar fastur starfsmaður við. Að auki störfuðu fjölmargir við Setrið í styttri tíma. Æskilegt er að fjölga enn föstum starfsmönnum.</description>
      <alt>Höfn</alt>