Júlí
Tour til Fáskrúðsfjörður
Tour til Fáskrúðsfjörður
Tour til Fáskrúðsfjörður. Við göngin undir Almannaskarð.
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

21.07.2005 Júlí

Hjóla frá Reykjavík til að taka þátt í Frönskum dögum

Á þriðjudagskvöld kom til Hafnar 5 manna hópur hjólreiðamanna sem eru að hjóla frá Reykjavik til Fáskrúðsfjarðar til að taka þátt í Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði sem fara fram næstu helgi. Ferðalangarnir eru frá 11 til 53 ára, allir Fáskrúðsfirðingar sem búa bæði á Fáskrúðsfirði og höfuðborgarsvæðinu. Ferðin er farin í 8 áföngum, þ.e ferðin frá Reykjavík til Fáskrúðsfjarðar farin á 8 dögum. Hver áfangi ferðarinn er frá 70-115 km. Síðasti áfanginn áður en til Hafnar var komið var frá Hofi í Öræfum til Hafnar sem eru 110 km. Hópurinn gisti á tjaldstæðinu á Höfn og hét þaðan í gær til Djúpavogs.

Hugmyndin fæddist á Tour-de Fáskrúðsfjörður sem er hjólreiðarkeppni sem haldin er á Frönskum dögum og þar sem hátíðin er nú haldin í 10 skipti var ákveðið að hjóla frá Reykjavík til Fáskrúðsfjarðar. Að þessu sinni verður ekki formleg Tour-de Fáskrúðsfjörður því að heimamenn ætla að taka á móti hópnum á Stöðvarfirði og hjóla með síðasta áfangann til Fáskrúðsfjarðar. Þeir sem hjóla heita Björgvin Snær Ólafsson, Ólöf Brynja Aradóttir, Guðbjörn Margeirsson, Jóhanna Hauksdóttir og Eyþór Friðbergsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica