Júlí
Hildur Vala
Hildur Vala
Hildur vala merður meðal þeirra sem skemmta á Ungmennafélagsmótinu á Vík í Mýrdal

20.07.2005 Júlí

Verslunarmannahelgin framundan

Fjölskyldan á ferð

Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar og Ungmennasambandið Úlfljótur hvetur hornfirskar fjöldskyldur til að leggja leið sína á Unglingalandsmótið í Vík í Mýrdal um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin hafa verið haldin undanfarnar verslunarmannahelgar, verið fjölsótt og tekist einstaklega vel. Þetta eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 til 18 ára eru í aðalhlutverkum, koma saman til að keppa í íþróttum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá landsmótsins. Verið er að skrá börn og unglinga sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttakeppni á landsmótinu á skrifstofu U.S.Ú. Hafnarbraut 25, Sindrahúsinu á miðvikudögum fram að landsmóti á milli 16:30 og 17:30.

Allar upplýsingar um landsmótið er að finna á vef Ungmennafélags Íslands www.ulm.is.

Góða skemmtun á unglingalandsmóti !

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica