Þokan svo þykk að ekki væri hægt að sjá andlit sitt í spegli
Kjartan Jakob Hauksson sem lagði af stað á árabáti frá Bolungarvík í byrjun júní á ferð sinni hringinn í kringum landið. Að sögn Arndísar Guðmundsdóttur, kynningar- og félagsmálafulltrúa Sjálfsbjargar þá hefur ferðin gengið mjög vel og er hann nú staddur á Djúpavogi. Við komuna til Djúpavogs þá mætti honum þykk þoka, eins og Kjartan komst að orði í viðtali við Hemma Gunn þá var hún svo svört að hann hefði ekki séð andlit sitt í spegli. Næsti viðkomustaður er Höfn í Hornafirði og er áætlaður komutími annað kvöld. Komutíminn mun verða auglýstur nánar á SkjáVarpi svo Hornfirðingar geti tekið á móti honum við komuna til Hafnar. Kjartan lagði upp frá Reykjavík þann 21. ágúst 2003 en ferðinni lauk með brotlendingu í Rekavík, norður af Bolungarvík 7. september sama ár. Kjartan hélt áfram þar sem frá var horfið á nýjum báti og má búast við að róin vegalengd verði u.þ.b. 3000 km leið.
Til gamans má geta þess að Kjartan þarf að hafa sig allan við er hann er í landi að borða til að viðhalda líkamsþyngd sinni. Hann missir að meðaltali um 3-4 kíló í hverri törn sem hann tekur í róðri, þrátt fyrir að hann borði vel og drekki 6-7 lítra að vökva í þessum löngu törnum. Í þessum törnum er hann að brenna um 10 -12 þúsund hitaeiningum þegar hann er að róa um 15-20 tíma á sólarhring.
Tilgangurinn með ferðinni er að vekja athygli á ólíkum möguleikum fatlaðra og ófatlaðra til ferðalaga. Áætlað er að ferðin taki um það bil 6-8 vikur. Kjartan mun ljúka ferð sinni í Reykjavíkurhöfn. Báturinn sem hann mun róa á er kominn til landsins. Hann ber nafnið Frelsi og er smíðaður í Frakklandi. Atlantsskip hafa af rausnarskap styrkt verkefnið með flutningi á bátnum frá Bandaríkjunum til Íslands.
Eins og báturinn ber verkefnið yfirskriftina Frelsi og vísar til þess að hreyfihamlaðir eru hvattir til þess að láta drauma sína um að ferðast innanlands og utan rætast. Kjartan mun reglulega hafa viðdvöl í landi, en á útvöldum stöðum verður tekið á móti honum með viðhöfn. Markmiðið með ferðinni er að vekja athygli á möguleikum hreyfihamlaðra til ferðalaga, eins og fram hefur komið, en einnig að safna fé í Hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar, lsf. með það að markmiði að auðvelda hreyfihömluðum að ferðast.
Þeir einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styrkja framtakið og fræðast nánar um ferðina geta farið inn á heimastíðu Sjálfsbjargar, www.sjalfsbjorg.is . Á síðunni er siglingakort sem sýnir róðurinn, dagbók sem flytur reglulegar fréttir af ferðum Kjartans og gestabók þar sem fólk getur sent hvatningarorð.




Skrifa athugasemd