Stóðu sig mjög vel á UÍA mótinu
Um síðustu helgi var haldið UÍA mót í frjálsum íþróttum á Egilsstöðum. 10 krakkar fóru frá Hornafirði og kepptu fyrir hönd Sindra og stóðu þau sig öll mjög vel. Keppendur sem voru 10 ára og yngri fengu allir þáttökuverðlaun. Hinir eldri sem fengu ekki verðlaun stóðu sig einnig mjög vel og voru ekki langt frá verðlaunasætum. Fannar Blær Egilsson náði 1. sæti í Eiðahlaupinu sem er 12,5 km og var hann jafnframt yngsti keppandinn í hlaupinu. Fannar lenti einnig í 3. sæti í boðhlaupi 13 til 14 ára ásamt Júlían bróðir sínum og tveim keppendum úr Mána. Júlían lenti í 2. sæti í hástökki 11-12 ára, 3. sæti í langstökki 11-12 ára, 3. sæti í 800 m hlaupi 11-12 ára og 3. sæti í boðhlaupi 13-14 ára.
Karitas Björt Óskarsdóttir lenti í 3. sæti í 800 m hlaupi 13-14 ára. Aðalsteinn Ingi Helgason fékk fjögur brons (3.sæti) í sundi fyrir 50 m skriðsund, 50 m baksund, 50 m bringusund og 25 m flugsund.





Skrifa athugasemd