Júlí
Strandganga
Strandganga
Strandgöngumaðurinn ásamt Alberti Eymundssyni bæjarstjóra
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

13.07.2005 Júlí

Strandgöngumaðurinn boðinn velkominn til Hornafjarðar

Jón Eggert Guðmundsson strandgöngumaðurinn var boðinn velkominn af Alberti Eymundssyni bæjarstjóra, Guðnýju Jensdóttur og Björgu Svavarsdóttur frá Krabbameinsfélag Suðausturlands við Lónsafleggjarann um hádegisbilið í dag. Jón er 37 ára líffræðingur og kerfisfræðingur lagði af stað í gönguna frá Vogum á Vatnsleysuströnd 17. júní s.l. og hefur gengið eftir strandvegum. Jón er nú tæplega hálfnaður á strandgöngu sinni þetta árið sem mun enda á Egilsstöðum síðar í þessum mánuði. Að hans sögn þá hefur gangan heppnast mjög vel, gott veður á leiðinni og ökumenn mjög tillitssamir. Félagi Jóns, Sigfús Austfjörð er með Jóni í þessari ferð sem sérlegur aðstoðarmaður og ekur hann á eftir í hæfilegri fjarlægð.

Þeir félagar gistu í nótt hjá frænku Jóns á Setbergi í Nesjum. Þar er ætlunin að gista næstu nætur og taka síðan frí á laugardag til að skoða sig um á Höfn og í nágrenni og að sjálfsögðu fara í heita pottinn í sundlauginni. Jón segist vera í góðu formi og gengur um 20-30 km. á dag sem sé passlegt. Jón er með spilara til að hlusta á góða tónlist á göngunni, hann segist helst hlusta á Pink Floyd sem sé uppáhaldið. Frá Lónsafleggjara er ferðinni heitið að Almannaskarði og upp skarðið því ekki er leyfilegt að fara fótgangandi í gegnum göngin.

Gangan, sem nefnd er Strandgangan, er til styrktar Krabbameinsfélaginu. Hægt er að leggja frjáls framlög inn á sérstakan söfnunarreikning 301-26-102005, kt. 700169-2789, eða hringja í söfnunarsíma 907 5050 og verða þá eitt þúsund krónur innheimtar með næsta símareikningi. Á vefsíðunni http://joneggert.gsmblogg.is er hægt að fylgjast með því hvernig gengur, en Jón sendir nýjar upplýsingar inn á síðuna á hverjum degi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica