Júlí
5_flokkur 2005
5_flokkur 2005
5_flokkur 2005 (úr myndasafni)
Mynd 1 af 2
1 2

13.07.2005 Júlí

Áfram Sindri, áfram Sindri

Það er búið að vera mikið um að vera hjá Knattspyrnudeild Sindra undanfarið. Ef byrjað er á meistaraflokk karla þá hafa þeir heldur betur verið að sækja í sig veðrið og eru nú búnir að titla sér uppá topp í sínum riðli með 5 sigurleikjum í röð. Núna síðast unnu strákarnir Ými frá Kópavogi 3-0 þar sem Kristinn Þór skoraði 2 og Steinar 1 og lagði upp hin tvö. Steinar er markahæsti maður Sindra og riðilsins og skoraði hann sína fyrstu þrennu á ferlinum núna um daginn gegn Árborg á Selfossi í 3-1 sigurleik gegn þeim. Sindri hefur fengið fæst mörk á sig í sumar og skorað 16 sem segir okkur það að Steinar hefur skorað helming marka Sindra. Næsti leikur hjá strákunum er næstkomandi föstudag í Vestmannaeyjum gegn sterku liði KFS.

Stelpurnar í meistaraflokki fengu Fjarðarbyggð í heimsókn um daginn og gerðu sér lítið fyrir og unnu þær 2-0 þar sem Sandra Rán og Jóna Benný skoruðu sitt markið hver. Þær stúlkur héldu austur á Egilsstaði 9.júlí s.l og spiluðu gegn Hattarstúlkum. Leikurinn endaði 5-2 Egilsstaðastelpunum í hag. Jóna Benný skoraði bæði mörk Sindra. Þær eru nú í 3.sæti riðilsins 3 stigum á eftir Hetti. Næsti leikur þeirra er á Sindravöllum 20.júlí gegn LeikniF.

Á miðvikudaginn fyrir tæpri viku síðan rótburstaði 4.fl.kvenna stelpurnar frá Egilsstöðum 9-0. Svo á fimmtudeginum var góður dagur á Sindravöllum, spilaðir voru 4 leikir og vann Sindri þrjá af þeim, 5.fl.karla vann Hugann/Einherja 8-0. 5.fl.kvenna A-lið vann Hött 3-2 og B-liðið vann Hött 3-0, 4.fl.karla beið lægri hlut fyrir Fjölni 2-3. Á laugardaginn lék 3.flokkur gegn Víði frá Garði og töpuðu okkar menn þeim leik naumlega 1-0. Þeir rifu sig heldur betur upp á heimleiðinni því þeir sigruðu KFR 5-3 á sunnudeginum þar sem strákarnir okkar skoruðu 4 mörk á síðustu 15 mínútunum. 4.fl.karla fékk svo heimsókn frá Fylkismönnum núna á Sunnudaginn og unnu Fylkismenn þann leik 2-4. Í gær mánudag voru 2 leikir á Sindravöllum þar sem 5.flokkur kvenna gerði 1-1 jafntefli og 5.fl.kvenna gerði 2-2 jafntefli við Leiknisstúlkur frá Fáskrúðsfirði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica