Mikil aukning í ferðaþjónustunni í júní.
Það er gott hljóðið í þeim ferðaþjónustuaðilum sem haft var samband við, eru allir sammála um að talsverð aukning hafi verið í gistingum í júní samanborið sama tíma í fyrra. Nú í ár er aukning um ca. 32% af gestum frá því í júní í fyrra 2004 segir Sigrún Kapitóla hjá Þjónustumiðstöðinni á tjaldsvæðinu. Munar þar helst um 57% aukningu hjá Belgum, 78% aukningu hjá íslendingum og 33% aukning hjá Hollendingum. Aukning er um 31% í gistinóttum. Alls eru gistinætur á tjaldsvæðinu í júní 999 og hafa aldrei verið fleiri í júnímánuði og það eru íslendingar og Hollendingar sem stoppa lengst hjá okkur segir Sigrún. Þrír stórir húsbílahópar með um 110 manns höfðu hér viðkomu í júní og það er lang mest um að íslendingar séu á húsbílum eða með hjól- eða fellihýsi, sárafáir sem tjalda.
Laufey Helgadóttir hótelstjóri á Smyrlabjörgum segir bjart yfir ferðaþjónustu á svæðinu og að allt sé það á uppleið. Júnímánuður var mikið betri en áður hefur verið, ferðatíminn byrjaði fyrr og sumarið lítur mjög vel út fyrir okkur segir Laufey. Sama var hjá Laufeyju Guðmundsdóttur með ferðaþjónustuna í Borgarhöfn, þar blómstrar starfsemin hjá henni eins og best verður á kosið.





Skrifa athugasemd