Júlí
Humar í Papós
Humar í Papós
Humarvinnsla í Papós (úr myndasafni)
Mynd 2 af 2
1 2

07.07.2005 Júlí

Gott atvinnuástand á Hornafirði

Atvinnuástand á Hornafirði hefur verið gott það sem af er þessu ári og vantar fólk í ýmiskonar störf. Listi atvinnulausra er í algjöru lámarki en þar eru átta skráðir flest konur. Þorkell Kolbeins hjá Vökli stéttarfélagi segir að þetta sé fólk sem ekki komist í algeng störf eða geti aðeins unnið einhver hlutastörf og hann segir að svona listar tæmist nánast aldrei. Mikil eftirspurn hefur verið eftir starfsfólki í sumar, mun meira en verið hefur undanfarin ár.
Líkt og var hér áður fyrr fengu 30 unglingar vinnu í humrinum hjá Skinney Þinganesi. Í bæjarvinnunni, vinnuskólanum, eru 40-50 unglingar sem er um helmingi færri en voru í fyrra og það hefur þau áhrif að krakkarnir fá vinnu allan daginn og einhverjir þeirra hafa farið í aukavinnu eftir bæjarvinnuna.

Meira er spáð í fasteignir og komið meira af fyrirspurnum af Reykjavíkursvæðinu en áður og nýlega seldust hér þrjú einbýlishús sagði Snorri Snorrason hjá fasteignasölunni Hrauni.
Það sem fólk er mikið farið að skoða er hvernig búsetuskilyrði eru, þ.e atvinna, hvernig heilsugæsla sé á staðnum, leikskólapláss, skólar, samgöngur, félags og menningarlíf og ekki síst hvað kostar að kaupa hús eða íbúð á staðnum. Allir þessir þættir verða að teljast mjög jákvæðir hér á Hornafirði og að auki er náttúrufegurðin og fjölbreytni hennar í sérflokki. Veðurfar verður að teljast sérstaklega hagstætt á þessu landsvæði og nánast snjólausir vetur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica