Bílarnir eru að verða flottari og frumlegri
Samantekt: Guðbjörg Garðarsdóttir
Kassabílarall Landsbanka Íslands var haldið að vanda á Humarhátíð, var þetta í 8. skiptið sem rallið er haldið. Keppnin var mikil og erfitt að velja því bílarnir eru alltaf að verða flottari og frumlegri. Aðeins voru færri bílar en frá árinu 2004 en alls tóku 13 bílar þátt en voru 19 í fyrra. Fyrstu verðlaun hlutu Kristófer Hansson og Kristinn A Lúðvíksson með tímann 19,79 sek., önnur verðlaun hlutu Hannes Halldórsson og Eggert H Þórhallsson með tímann 20.16 sek.,og þriðju verðlaun hlutu Þorgils Snorrason og Jón páll Sveinsson með tímann 20.20 sek. Farandbikar fyrir flottasta bílinn hlutu Jón Bjarni Sindrason og Kolbrún Lilja Skúladóttir á Jöklajeppa-bíl, settur saman úr tveim hjólbörum.
Farandbikar fyrir frumlegasta bílinn hlutu systkinin Hákon Logi Stefánsson og Sædís Harpa Stefánsdóttir á akandi gróðurhúsi með lifandi blómum.
Starfsfólk Landsbankans á Hornafirði þakkar þeim krökkum sem tóku þátt í rallinu kærlega fyrir, með von um að sjá sem flesta á næstu Humarhátíð 2006.




Skrifa athugasemd