Hlauparar Vinahlaupsins komu til Hafnar í gærkvöldi
Um átta leitið í gærkvöldi komu hlauparar alþjóðlega Vináttuhlaupsins ,,World Harmony Run" til Hafnar. Lögreglan á Höfn ók á undan hópnum síðasta spölinn. Hlauparar úr Nesjum bættust í hópinn á Mýrum og hlauparar frá Höfn bættust í hópinn á Fljótaveginum. Einn þátttakandi Fannar Blær Egilsson þótti standa sig mjög vel en hann hljóp hvíldarlaust frá Fljótaveginum til Hafnar. Hlaupið endaði við Sundlaug Hafna, þegar krakkarnir og hlaupararnir voru búnir að kasta mæðinni þá tóku hlaupararnir lag vinátuhlaupsins fyrir þátttakendurna frá Höfn, Nesjum og þá áhorfendur sem komnir voru að sundlauginni til að taka á móti Hópnum.
Hópurinn gisti í nótt í Hafnarskóla og hélt hann af stað í morgun um 9 leitið austur á leið.




Skrifa athugasemd