Júlí
Mastrið
Mastrið
Halldór Steinar íþróttafréttaritari, Gunnar Auðunn fréttastjóri, Sindri Ragnarsson æsifréttaritari og Gísli Reynis umsjónvarmaður sófans (á myndina vantar Sævar Már Björnsson)

04.07.2005 Júlí

Mastrið fær mjög jákvæðar undirtektir

Sjónvarpsþátturinn Mastrið sem er sýndur á Skjávarpinu á mánudagskvöldum kl. 20 hefur fengið mjög jákvæðar undirtektir og kemur þátturinn skemmtilega á óvart. Þættirnir sýna að ýmislegt er hægt að gera í heimabyggð þegar viljinn er fyrir hendi. Aðstandendur þáttanna þeir Gunnar,Gísli Örn, Sindri, Steinar og Sævar eiga virkilega hrós skilið fyrir framtakið og ekki síst fyrir það að þarna eru þeir að taka á ýmsu í bæjarlífinu, tala við fólk í atvinnulífinu, unga fólkið, forráðamenn bæjarfélagsins og t.d var viðtal Gísla við Albert bæjarstjóra í síðasta þætti mjög áhugavert. Gísli sagði að smá tæknivandamál hefðu verið hjá þeim en vonandi yrðu þau úr sögunni áður en næsti þáttur verður sýndur þar sem þeir voru að fá nýjan tækjabúnað. Fyrirtækið Opin Kerfi sem er umboðsaðili Hewlett Packard (HP) á Íslandi styður þetta framtak strákanna með því að lána þeim nýjan tölvubúnað endurgjaldslaust.

Þættirnir eru nú aðgengilegir hér á vefnum og þar geta þeir sem misst hafa af einhverjum þætti séð þá. Um leið og við minnum fólk á að stilla á Skjávarpið kl. 20.00 á mánudagskvöldum óskum við strákunum til hamingju með góða þætti og vonum að Mastrið sé komið til að vera og verði fastur liður í fjölmiðlastarfsemi á Hornafirði.

Hér er hægt að horfa á þættina á netinu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica