Júlí
Humarhátíðargolf 2005
Humarhátíðargolf 2005
Haraldur Jónsson sem fór holu í höggi. Með honum á myndinni eru Hermann Stefánsson og Vífill Karlsson.
Mynd 2 af 2
1 2

04.07.2005 Júlí

Fór holu í höggi á Humarhátíðargolfmótinu um helgina

Golfklúbbur Hornfjarðar

Hið árlega Humarhátíðarmót fór fram á Silfurnesvelli um helgina á laugardeginum í mjög góðu veðri ,,mótið slapp á milli skúrana? eins og Guðný Helgadóttir formaður Golfklúbbsins komst að orði. Mótið hófst um morgunninn og var því lokið um tvö leitið. Alls voru það 34 sem tóku þátt í mótinu en auk heimamanna komu þátttakendur víða að til að taka þátt í mótinu, bæði gestir sem voru hér staddir á tjaldstæðinu og gestir heimamanna yfir Humarhátíðina. Haraldur Jónsson frá Golfklúbbi Hornafjarðar fór holu í höggi á 3 braut sem hlýtur að vera draumur hvers kylfings. Eins og undanfarin ár þá voru verðlaunin úrvals humar í boði Skinneyjar-Þinganess. Eftir mótið var boðið upp á humarsúpu og brauð sem fór mjög vel í þátttakendur.

Næsta mót félagsins er meistaramót og verður skilað um klúbbmeistara, mótið fer fram síðar í þessum mánuði.

Úrslit í mótinu voru þessi:

1. sæti með 37 punta var Guðni Rúnar Jónsson
2. sæti með 36 punta var Guðný Helgadóttir
3. sæti með 35 punkta var Jón Axelsson
4. sæti með 34 punkta var Haraldur Jónsson
5. sæti með 33 punkta var Kristján Vífill Karlsson
6. sæti með 32 punkta var Jóhann Bergur Kiesel

Mælingu á 5 braut átti Garðar Ingi Leifsson

Næsta mót félagsins er meistaramót og verður spilað um klúbbmeistara. Mótið fer fram á Silfurnesvelli síðar í þessum mánuði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica