Páll Hermannsson frá Reykjavík heimsmeistari
Níunda heimsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna fór fram á Humarhátíð að vanda. Keppt er um vegleg verðlaun ásamt humarskálinni sem heimsmeistarinn varðveitir til næsta móts. Keppendur voru 120 og eftir spennandi úrslitakeppni stóð Páll Hermannsson frá Reykjavík uppi sem heimsmeistari. Heimamenn hafa hampað titlinum ef undan er skilið fyrsta mótið en nú komst enginn heimamaður í þriggja manna úrslitin. Í öðru sæti var Sigríður Blöndal frá Reykjavík og þriðja var Dagný Sverrisdóttir frá Stöðvarfirði. Á næsta ári verður tíunda heimsmeistaramótið haldið og af því tilefni hyggst útbreiðslustjórinn gera átak til að auka vinsældir mótsins enn frekar. Næsta mót í Hornfjarðarmanna verður í desember og þá verður keppt um Hornafjarðarmeistaratitilinn og síðan á þorranum verður Íslandsmeistaramótið í Reykjavík.
Heimsmeistarar frá uppi eru:
1997 Njáll Sigurðsson
1998 Örn Þór Þorbjörnsson
1999 Margrét Eyjólfsdóttir
2000 Margrét Eyjólfsdóttir
2001 Jóna Steindórsdóttir
2002 Gísli Jóhannsson
2003 Birgir Björnsson
2004 Björn Arnarson
2005 Páll Hermannsson





Skrifa athugasemd