Júlí
Höfn
Höfn

03.07.2005 Júlí

Viðgerð á ljósleiðara dregst vegna aurskriða

Ljósleiðari Símans rofnaði um hádegið í dag að því er talið er vegna aurskriðu á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.Útsending Ríkisjónvarpsins, Bylgjunnar og FM957 hefur legið niðri á Höfn í dag. Einnig hefur útsending Stöðvar 2 og Skjás Eins legið niðri í dag. Bilunin hefur engin áhrif á talsímasamband Símans á þessu svæði. Rofið hefur einnig áhrif á gagnaflutninga á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Djúpavogi og GSM samband á Fáskrúðsfirði. Enn er leitað leiða til að tengja sambönd um aðrar leiðir. Viðgerð á ljósleiðaranum mun eitthvað dragast vegna gífurlegra rigninga.

Vegir eru víða lokaðir vegna veðurs og ófærðar af völdum skriðufalla þannig að viðgerðarmenn hafa ekki komist á staðinn til að meta aðstæður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica