Hjálpuðu fólki að ganga frá tjöldum og farangri
Björgunarsveitarmenn á Hornafirði aðstoðuðu í morgun fólk sem var í tjöldum á tjaldsvæðinu á Höfn við að taka búnað sinn saman. Mikil rigning og nokkuð hvasst var í morgun svo við hjálpuðum fólki að ganga frá tjöldum og farangri og það gekk allt alveg ljómandi vel sagði Sveinbjörn Steinþórsson björgunarsveitarmaður, síðan var fólkinu boðið að koma í íþróttahúsið fá heita súpu, fara í þurr föt og hlýja sér og voru allmargir sem nýttu sér það boð. Fellihýsa- og húsbíla fólki sem hugði til hreyfings í morgun, var ráðlagt að hinkra aðeins við þar til vindur gengi niður, einkum þeim sem voru á austurleið þar sem ferðaveður var slæmt austan Hafnar. Vegagerðin hefur í morgun og dag verið með vakt við Þvottár- og Hvalnesskriður sem alltaf eru varhugaverðar í svona veðri en að sögn Reynis Gunnarssonar hjá Vegagerðinni hafði ekki hrunið mikið úr skriðunum í dag og vegurinn vel fær.
Núna um miðjan dag er komið ágætis ferðaveður, með smá rigningu annað slagið, og ættu allir ferðmenn að komast áhyggjulausir leiðar sinnar.





Skrifa athugasemd