Júlí
Bílakosturinn
Bílakosturinn

03.07.2005 Júlí

Björgunarsveitin kölluð út í gær

Björgunarsveit Hornafjarðar var kölluð út í gær til leitar að manni sem ætlaði að ganga á tind Ketillaugarfjalls í Nesjum. Haft var samband við björgunarsveitina um kl 14 og hún beðin um að leita mannsina þegar hann var ekki kominn heim á tilteknum tíma. Björgunarsveitarmenn fundu manninn látinn efst í fjallinu þar sem hann hafði hrapað. Ekki er ljóst hvort maðurinn hefur fengið aðsvif og fallið af þeim sökum.

Um tveggja og hálfs tíma ferð er upp að slysstaðnum. Hinn látni var búsettur á Höfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica