Júlí
Höfn
Höfn
Séð frá Hótel Höfn á góðum sumardegi (úr myndasafni)

01.07.2005 Júlí

Starfsemi Háskólasetursins á Hornafirði dafnar

Ársskýrsla Háskólasetursins á Hornafirði lítur nú dagsins ljós í annað sinn. Setrið tók til starfa vorið 2002 og árið 2004 er því annað fulla starfsár þess. Á þessum árum hefur starfsemin dafnað og stoðir hennar styrkst. Þrjú ár eru stuttur tími í lífi seturs sem þarf að afla fjár til verkefna að miklu leyti með styrkjum úr samkeppnissjóðum, slík verkefni tekur tíma að byggja upp. Á árinu rúmlega þrefölduðust sértekjur Setursins, úr um 750 þúsund krónum árið 2003 í um tvær og hálfa milljón króna á árinu 2004. Fyrirséð er að á árinu 2005 munu sértekjur þess aukast enn. Frá upphafi hefur forstöðumaður verið eini fasti starfsmaður Háskólasetursins, en í lok árs 2004 bættist annar fastur starfsmaður við. Að auki störfuðu fjölmargir við Setrið í styttri tíma. Æskilegt er að fjölga enn föstum starfsmönnum.

Í meðfylgjandi skýrslu er að finna lýsingu á helstu verkefnum sem unnið var að á Háskólasetrinu á Hornafirði á árinu 2004. Má þar meðal annars nefna nýtt verkefni um uppbyggingu og þróun sjálfbærrar ferðamennsku á norðurslóðum, sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins og Byggðastofnun. Í skýrslunni eru einnig upplýsingar um starfsmenn og fjárveitingar.

Háskólasetur á landsbyggðinni efla fræða- og rannsóknastörf, auka áhuga almennings á þekkingu og menntun og efla tengsl Háskóla Íslands við landsbyggðina. Þau leggja grunn að rannsóknum og störfum í heimabyggð sem að öðrum kosti væru ekki unnin þar. Að auki skapa setrin ný störf og auka fjölbreytni í atvinnulífi landsbyggðarinnar.

Hlutverk Háskólasetursins á Hornafirði er að efla rannsóknir og þekkingartengda starfsemi á Suðausturlandi. Lögð hefur verið áhersla á að efla fjölþjóðleg samvinnuverkefni, sem og að efla samvinnu heimamanna og vísindamanna. Þessi áhersla kemur vel fram í verkefnum Setursins sem annars vegar tengjast umhverfisbreytingum og hins vegar ferðamennsku.

Háskólasetrið á Hornafirði er samvinnuverkefni Háskóla Íslands, Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Vegagerðarinnar, Siglingastofnunar Íslands, Veðurstofu Íslands og Landsvirkjunar. Upphaflegur samningur um rekstur Háskólasetursins á Hornafirði var endurnýjaður í lok ársins 2004 fram til loka 2005. Þessir aðilar hafa frá stofnun Setursins lagt því til árlegt rekstrarfé og sýnt starfi þess mikinn áhuga. Aðrar tekjur Setursins eru sjálfsaflafé sem að langmestu leyti hafa verið styrkir til verkefna úr innlendum og erlendum samkeppnissjóðum.

Háskólasetrið stendur nú á tímamótum. Samninga um rekstur þess þarf að endurnýja og nauðsynlegt er að gera sameiginlegt átak til þess að tryggja starfsemi þess til lengri tíma. Nú er að störfum nefnd menntmálaráðuneytisins um Þekkingarsetur Austurlands. Fyrirsjáanlegt er að á Höfn verður einn af hornsteinum þess. Æskilegt væri að marka stefnu hvað varðar hlutverk Háskólasetursins á Hornafirði í væntanlegu Þekkingarsetri Austurlands og einnig hvað varðar hlutverk þess í kennslu og menntamálum í byggðarlaginu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica