Sjónvarpsþátturinn Mastrið sem er sýndur á Skjávarpinu á mánudagskvöldum kl. 20 hefur fengið mjög jákvæðar undirtektir og kemur þátturinn skemmtilega á óvart. Þættirnir sýna að ýmislegt er hægt að gera í heimabyggð þegar viljinn er fyrir hendi. Aðstandendur þáttanna þeir Gunnar,Gísli Örn, Sindri, Steinar og Sævar eiga virkilega hrós skilið fyrir framtakið og ekki síst fyrir það að þarna eru þeir að taka á ýmsu í bæjarlífinu, tala við fólk í atvinnulífinu, unga fólkið, forráðamenn bæjarfélagsins og t.d var viðtal Gísla við Albert bæjarstjóra í síðasta þætti mjög áhugavert. Gísli sagði að smá tæknivandamál hefðu verið hjá þeim en vonandi yrðu þau úr sögunni áður en næsti þáttur verður sýndur þar sem þeir voru að fá nýjan tækjabúnað. Fyrirtækið Opin Kerfi sem er umboðsaðili Hewlett Packard (HP) á Íslandi styður þetta framtak strákanna með því að lána þeim nýjan tölvubúnað endurgjaldslaust.
Lesa meira