Ríki Vatnajökuls - Júní
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Félagsmót Hornfirðings 2005 - úrslit
      <description>Félagsmót hestamannafélagsins Hornfirðings var haldið 25.-26. júní á Fornustekkum í ágætu veðri, lítilsháttar rigningu og þoku á laugardeginum, en í sól og blíðu á sunnudeginum þegar úrslit fóru fram. Skráð voru um 50 hross til keppni og eitthvað færri knapar í hinum ýmsu flokkum og allt mótshaldið gekk vel fyrir sig bæði hjá félagsmönnum og dómurum. Á laugardagskvöldið var útigrill við félagsheimilið í Stekkhól og síðan var fjölmennt í hópreið út í Skóey á eftir. Dómarar mótsins voru  Sveinn Jónsson, Magnús Halldórsson og Guðmundur Hinriksson. Knapi mótsins var Jóna Stína Bjarnadóttir Fornustekkum og hestur mótsins, Baun frá Kúskerpi, eigandi Pálmi Guðmundsson.</description>
Selirnir á Jökulsárlóni ánægðir með athyglina
      <description>Fjöldi landsela hefur lífgað upp á umhverfið við Jökulsárlón undanfarið. Selirnir halda sig framarlega í lóninu og eru oft 20-30 í hóp á jökunum. Þetta vekur mikla ánægju hjá þeim sem sigla um lónið og selirnir eru orðnir vanir umferðinni og eru ánægðir með athyglina. Utan við Jökulsárósinn sveima hnísur og hrefnur og koma uppundir fjöru. Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón er mjög ánægður með þennan aukabónus á allt það stórfenglega sem Jökulsárlón hefur uppá að bjóða. Haförn sveimaði yfir lóninu um daginn og er það í fyrsta sinn sem Einar Björn sé haförn á þessu svæði. Kríuvarpið er svipað og hefur verið árin á undan og hefur það alltaf mikið aðdráttarafl á ferðamennina og því grimmari og aðgangsharðari sem krían er því meira gaman.</description>
Fyrsti bíll án aðstoðar upp Almannaskarðið fyrir 75 árum
      <description>Það voru tímamót í samgöngumálum í Hornafirði þegar bíll komst án aðstoðar upp Almannaskarðið fyrir 75 árum. Það var 18. nóvember 1929 að bíll frá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga fór með marga farþega frá Höfn upp í Lón en árið áður hafði reyndar annar vörubíll farið skarðið en þurfti töluverða hjálp, sagði Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar í ávarpi sínu eftir opnun jarðgangnanna  undir Almannaskarð. Fram að þessum tíma hafði verið lestargata niður skriðuna  en eftir 1930 fór vegurinn smá saman batnandi  eftir því sem stórvirkari vinnuvélar komu til sögunnar. Föstudagurinn 24.júní var líka stór dagur í samgöngumálum Hornfirðinga þegar jarðgöngin undir Almannaskarð voru opnuð til umferðar.</description>
Björgunarskipið Ingibjörg sækir sjúkling um borð í Smáey VE
      <description>Björgunarskipið Ingibjörg fór í morgun í sinn fyrsta leiðangur þegar skipið sótti slasaðan sjómann um borð í Smáey VE sem hafði skorist í andliti við að detta ofan í lest skipsins. Útkallið var um fjögur leitið í nótt og var björgunarbáturinn lagður af stað skömmu síðar. Björgunarskipið og Smáey VE mættust  síðan skammt austur af Hrollaugseyjum þar sem sjúklingurinn var færður um borð í björgunarskipið og síðan var haldið til Hafnar. Björgunarskipið kom í land með hinn slasaða um 8 leitið í morgun þar sem hann var færður undir læknishendur. Að sögn Jónasar Friðrikssonar hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar gekk ferðin mjög vel, smá undiralda á leiðinni  og reyndist skipið mjög vel í alla staði.</description>
      <alt>Björgunarskipið Ingibjörg</alt>
Gamli Ford-vörubíllinn fer fyrstur í gegnum göngin
      <description>Göngin gegnum Almannaskarð verða formlega opnuð og tekin í notkun á morgun föstudaginn 24. júní. Athöfnin hefst með ræðu Sturlu Böðvarssonar samgöngumálaráðherra við syðri enda gangnanna. Því næst ekur Óskar Alfreðsson gamla Ford-vörubílnum með skráningarnúmerið Z-19, árgerð 1930 í gegnum göngin og þar með verða þau orðin hluti þjóðvegar 1. Þessi gamli Ford var í eigu Guðmundar bónda í Þórisdal í Lóni. Að lokinni athöfn við göngin mun Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra fara á Hótel Höfn þar sem hann tekur á móti boðsgestum á vegum samgöngumálaráðuneytisins.</description>
      <alt>Ford-vörubíll</alt>
Mikið um að vera hjá golfklúbbnum
      <description>Nú stendur yfir golfnámskeið fyrir börn og unglinga hjá Golfklúbbi Hornafjarðar. Námskeiðin eru ágætlega sótt og ekki leynir sér að það er mikill áhugi á golfinu hjá unga fólkinu og þarna eru á ferðinni  margir  efnilegir  kylfingar segir Guðný Helgadóttir formaður golfklúbbsins.Þá er einnig nýlokið námskeiði hjá fullorðna fólkinu og var það alveg þokkalega sótt og segir Guðný að  þeir kylfingar sem voru þar verði að vera duglegir við að æfa sig í listinni. Það er greinilega engin miskunn á þeim bæ. Um helgina verður svo Jónsmessumót sem alltaf er gaman að taka þátt í og Guðný hvetur alla sem mögulega geta beitt kylfunum að mæta nú og taka þátt  í skemmtilegu móti, móti sem verður enn skemmtilegra með þátttöku sem flestra þátttakenda. Rétt er að minna félaga á að hafa einhverja óvana með sér til að pútta. Ýmsar þrautir þarf svo að leysa á hringnum.</description>
Ógleymanleg ferð að Humarkló
      <description>Laugardaginn 11.júní stóð Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu fyrir ferð að Humarkló, sem eru klettadrangar í jöklinum upp af Heinabergsdal á Mýrum. Lagt var af stað frá Flatey á Mýrum kl. 8.00, sextán manns á þrem jeppum og ekið upp að Jöklaseli og þaðan inn á Breiðubungu og síðan til suðausturs í átt að Humarkló. Um kl.13 var ökuferðin eftir jöklinum á enda og þaðan var um tveggja tíma gangur að áfangastaðnum Humarkló. Það var alveg yndislegt  að fara eftir jöklinum og veðrið var eins og best varð á kosið sagði Rannveig Einarsdóttir. Síðan var gengið eftir snjóbreiðum og fjallgörðum, göngufæri var gott og við fórum þetta  bara í rólegheitum, tókum fullt af myndum og nutum ferðarinnar og útsýnisins. Þarna er nokkuð um sprungur í jöklinum þó við sáum þær ekki en fyllsta öryggis var gætt og við vorum öll með öryggislínu milli okkar. Humarkló er einstaklega fallegir klettadrangar sem  standa upp úr jöklinum og þegar búið var að skoða þá, mynda mikið og gera nestinu góð skil var gengið til suðurs fram fjallgarðinn og fram á vörp sem eru innst í Heinabergsdal, síðan fram Heinabergsdal  þar sem jepparnir biðu okkar í mynni dalsins.</description>
Vetnislundinn á Höfn á hringferð sinni um landið
      <description>Í dag var staddur hér á Höfn hópur japanskra áhugamanna sem eru á hringferð um landið á vetnishjóli sem er þríhjól, knúið af efnarafölum sem nýtir vetni sem orkugjafa. Hópurinn lagði af stað frá Reykjavík 11. júní sl. norður fyrir og er hingað kominn 10 dögum síðar. Að sögn ferðalangana þá er næsti viðkomustaður á tjaldstæðinu á nágrenni við Jökulsárlón og síðan Jökulsárlón á morgun og sögðust þeir hlakka mikið til sjá þær perlur sem eru á nágrenni Vatnajökuls og því ætluðu þeir að bíða átekta á tjaldstæðinu við Jökulsárlón því samkvæmt spánni eiga þeir að fá flott ferðaveður á morgun. Þeir áætla að verða komnir til Reykjavíkur n.k. laugardag.</description>
      <alt>Vetnislundinn</alt>
Strákarnir í meistaraflokki rétta úr kútnum
      <description>Tveir leikir voru leiknir hér fimmtudaginn síðasta í 3. og 4. flokki karla. 4.flokkurinn tapaði naumlega gegn Ægi 3-2, en segja má að í 3.flokks leiknum hafi boltinn hafi fengið að kynnast markneti sameiginlegu liði Ægis- og Hamarsmanna nokkuð vel því strákarnir pökkuðu þeim leik saman 7-1. Skvísurnar okkar í meistaraflokki fóru svo norður og léku gegn sterku liði Þór/KA/KS sem eru nýliðar í 1.deild kvenna því þær léku í úrvalsdeild á seinustu leiktíð. Leiknum lyktaði með 8 mörkum heimakvenna gegn engu marki Sindrastelpna. 3.flokkur kvenna fór austur á Vopnafjörð á  sunnudag og unnu þær leikinn 4-2. Strákarnir í meistaraflokk eru aldeilis að rétta úr kútnum því þeir unnu sinn annan leik í röð í dag gegn sterku liði Reynis frá Sandgerði.</description>
Umsóknarfrestur kennaranáms framlengdur
      <description>Frestur til að sækja um inngöngu í kennara- og leikskólakennaranám við Háskólann á Akureyri hefur verið framlengdur til 24. júní. Stefnt er að því að nemendahópur verði á Hornafirði, en aðeins er fjarkennt á takmarkaðan fjölda staða hverju sinni. Þetta er því tækifæri sem býðst hugsanlega ekki í bráð aftur. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi. Námið er spennandi og skemmtilegur kostur fyrir þá sem vilja afla sér góðrar háskólamenntunar án þess að flytjast búferlum. Fjarnemar geta nýtt sér góða vinnuaðstöðu í námsverinu í Nýheimum og fengið margvíslega aðstoð við námið hjá Fræðsluneti Austurlands, m.a. námsráðgjöf, aðstoð við gagnaleit og heimildaöflun o.fl.</description>
Málþing NEST haldið á Kirkjubæjarklaustri
      <description>Málþing NEST verður haldið á Kirkjubæjarklaustri á morgun þriðjudag frá kl.1.00 til kl.17.00. Fundarstjórar verða Stella Sigfúsdóttir verkefnastjóri NEST og Jón Helgason sem setur málþingið. Rannveig Ólafsdóttir ræðir um ELDland, ÍSland: NEST-í ríki Vatnajökuls einnig ávinning fyrstu þverþjóðlegu ráðstefnu NEST í Skotlandi í vor. Stella Sigfúsdóttir ræðir um tækifæri í uppbyggingu sjálfbærrar ferðaþjónustu á Suðausturlandi. Sigurlaug Gissurardóttir og Ólafía Jakobsdóttir kynna vinnuhóp um tengslanet og Stella verður með kynningu vinnuhóps um viðskiptatækifæri.Rannveig Ólafsdóttir verður með kynningu vinnuhóps um þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu og Ragnar Frank þjóðgarðsvörður kynnir þróun náttúruskóla. Að lokinni hópvinnu kynnir Hjalti Þór Vignisson  niðurstöðu hennar og verður fundi slitið kl.17.00. Þátttökugjald er kr 2500 og innifalið í því er hádegismatur og kaffiveitingar.</description>
Þrír Hornafjarðarbátar eru byrjaðir með lúðulínu
      <description>Björn Arnarson safnvörður brá sér í eina lúðuveiðiferð með Unnsteini Þráinssyni á Sigga Bessa en hann er einn þriggja Hornafjarðarbáta sem eru byrjaðir með lúðulínu. Veiðisvæðið er austan við Hrollaugseyjar og hafa veiðar gengið vel. Með Unnsteini á bátnum eru Hólmar sonur hans og Örn Þór sonur Björns, harðduglegir sjómenn. Veiði var góð í þessari ferð og komu þeir með þrjár fullvaxnar lúður, eins og Björn orðaði það, og nokkrar minni. Í þessum túr var sú þyngsta 120 kg. en stærsta lúða sem Unnsteinn hefur veitt vó 218 kg. Þetta er fjórða árið sem Unnsteinn stundar lúðuveiðar og er aðalveiðisvæðið við Hrollaugseyjar og við Ingólfshöfða. Gott verð er fyrir lúðuna sem send er fersk og heil til Englands.</description>
Endurnýjun á bundnu slitlagi
      <description>Undanfarið hefur verið unnið við að endurnýja bundið  slitlag  á þjóðvegi 1 í Hornafirði. Búið er að leggja á veginn  vestan Þorgeirsstaða austur að Jökulsá og hefur 50 km hraðatakmörkun verið aflétt á þeim kafla. Síðan verður slitlag endurnýjað á veginum frá Össurará í Lóni að Hvaldalsá, frá Þvottá í Álftafirði að Geithellnaá og einnig í Hamarsfirði.
|nl|Í Öræfum verður slitlag endurnýjað  frá Kvíá að Fagurhólsmýri.
|nl|Meðan þessar framkvæmdir standa yfir er 50 km hámarkshraði á því svæði sem verið er að endurnýja. Því miður eru margir ökumenn sem ekki virða þessi takmörk og ausa lausagrjóti yfir þá sem þeim mæta og valda oft með því miklu tjóni og er full ástæða til að biðja alla ökumenn að virða hraðatakmörkin og sýna tillitssemi.
|nl|</description>
Súperstar í Loftkastalanum.
      <description>Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu,Tónskóli A-Skaft og Leikfélag Hornafjarðar verða með sýningar á Rokksöngleiknum SUPERSRAR  í Loftkastalanum í Reykjavík 18. og 19. júní kl.20.00. 
Rokksöngleikurinn SUPERSRAR var sýndur í Mánagarði í vor við miklar vinsældir og fengu leikarar og allir þeir sem að sýningunni komu mikið lof fyrir leik sinn og  sýningarnar í heild. Leikstjóri er Gunnar Sigurðsson. Leikendur eru nemendur FAS og með hlutverk Súperstar fer Ingi Steinn Þorsteinsson, Maríu leikur Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Nanna Halldóra Imsland leikur Júdas, systkinin Þórður Ingvarsson og Ingibjörg eru Pílatus og Heródes.</description>
17. Júní á Hornafirði.
      <description>Hátíðardagskráin hefst kl.13.30 með því að allir sem mögulega geta eru hvattir til að koma á planið við Miðbæ og þaðan verður skokkað eða gengið, allt eftir því sem hverjum hentar, inn  á túnið við Hótel Höfn þar sem Haukur Þorvaldsson setur samkomuna. |Nýstúdentinn Steinunn H. Harðardóttir flytur ávarp, Guðlaug Margrét syngur við undirspil Andra Snæs og Braga Fannars því næst verður ávarp fjallkonunnar flutt. Að þessum atriðum loknum verður slegið á léttari strengi og  m.a. munu starfsmenn Skinneyjar-Þinganess keppa við bæjarstarfsmenn í reiptogi, boðhlaup verður þar sem Papós og Bestfiskur keppa einnig starfsmenn 11-11 gegn starfsmönnum Krónunnar.
|nl|</description>
Karlakórsmenn taka Akurey í gegn
      <description>Karlakórsmenn höfðu mikið að gera í síðustu viku en þá mættu niður í Akurey til að taka hana í gegn fyrir Humarhátíðina sem nú er á næstu grösum. Þar voru mættir þeir hörðustu úr röðum Karlakórsins Jökuls. Gallvarskir spúluðu þeir bátinn, losuðu upp alla lausa málningu og þrifu hana hátt og lágt. Menn voru sammála um að kvótakóngurinn Öddi Þorbjörns hafi sýnt snilldar takta með smúlinn. Í framhaldi af því máluðu þeir bátinn í þeim litum sem hafa prýtt hana undanfarin ár. Karlakórsmennirnir  löguðu líka til í kringum bátinn, týndu upp allt rusl, fylltu að Akurey með nýrri perlumöl, eins og menn vita þá var Akureyjan dregin á land þar sem hún hefur haft mikið afdráttarfafl fyrir gesti og gangandi.</description>
Elsti þátttakandinn í kvennahlaupinu 82 ára
      <description>Kvennahlaupið  fór fram sl. laugardag, viku fyrr en verið hefur. Hér á Höfn var kvennahlaupið  í umsjá Svövu Mjallar Jónasar í Sporthöllinni og styrkt af  Sjóvá. Góð mæting var og alls hlupu 123 konur mismunandi vegalengdir frá 2,5 km. Elsti þátttakandinn í kvennahlaupinu í ár var Elínborg Pálsdóttir 82 ára, og fékk hún fallegan blómvönd frá Bláa Blóminu, bæði fyrir þátttökuna og að vera aldursforsetinn í hópnum. Fyrstar til að ljúka hlaupinu urðu þær Heba Björg Þórhallsdóttir, Dagbjört Ýr Kiesel og Iðunn Tara Ásgrímsdóttir.</description>
Árlega valda kindur miklu tjóni á ökutækjum
      <description>Blessaðar sauðkindurnar, sem oft eru nefndar því óvirðulega nafni ,,vegarollur” eru farnar að gæða sér á gróðrinum meðfram veginum frá Höfn inn að Lónsvegamótum. Þær eru fljótar að notfæra sér frelsið sem ónýtar girðingar veita þeim og alltaf er besta grasið á vegarbrúnunum. Árlega hafa kindur valdið miklu tjóni á ökutækjum þegar þær hafa ætt upp á veginn í veg fyrir umferðina sem er mjög mikil og oft hröð á þessum vegarspotta. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir bæjarstarfsmenn þurfa að smala og fjarlægja þær kindur sem séu við og á veginum bæjar megin við pípuhliðið en þeir skipti sér ekkert af þeim sem séu utan þess, það sé mál fjáreigendanna. Skemmist bifreið við ákeyrslu á búfé bæta tryggingafélögin ekki tjónið nema bifreiðin sé með kaskótryggingu og venjulega er þá um talsverða eigin áhættu að ræða.</description>
Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 4-0
      <description>Um helgina voru 3 leikir á Sindravöllum, á föstudaginn komu Egilsstaðastúlkur og spiluðu gegn meistaraflokki kvenna Sindra. Leikurinn endaði 5-0 Hattarstúlkum í vil. Fyrsti tapleikur stelpnanna í sumar. Á laugardaginn spiluðu svo meistaraflokkur karla gegn Hamarsmönnum frá Hveragerði. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 4-0. Fyrsti sigurleikurinn þeirra í sumar. mörkin skoruðu. Sindri Ragnarsson, Einar Smári Þorsteinsson, Steinar Kristjánsson og Kristinn Þór Guðlaugsson. 3.fl.karla fengu svo heimsókn frá Haukamönnum á laugadaginn, sá leikur endaði 3-3. og náðu Haukamenn að jafna á síðustu mínútunum. 4.flokkur karla gerði ágætis ferð til Reykjavíkur á föstudaginn en þá léku þeir við Fylkismenn og töpuðu þeim leik naumlega. Á laugardaginn léku strákarnir svo við KR-inga og sigruðu þann leik örugglega 6-1</description>
Nýting náttúruauðlinda vegna ferðamennsku
      <description>Í apríl sl. var haldin ráðstefna í Skotlandi um þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á Norðurslóðum, NEST, og sóttu hana þrír þátttakendur frá Hornafirði, Stella Sigfúsdóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Helga Davids ásamt Jónu Sigbjartsdóttur frá Sveitarfélaginu Skaftárhreppi. Þátttökulönd á ráðstefnunni voru  Ísland, Skotland, Finnland og Svíþjóð. Sjálfbær ferðamennska er skilgreind sem nýting náttúruauðlinda vegna ferðamennsku þar sem efnahagslegur ávinningur til lengri tíma, stöðug náttúruvernd og framþróun byggðar eru meginmarkmið. Til þess að slík ferðamennska verði árangursrík og skili þeim arði sem vænst er til verður stefnumótun og stjórnun hennar að byggjast á áreiðanlegum gögnum og rannsóknum um auðlindina sem selja á og taka þarf tillit til allra hagsmunaaðila og mun þessari skilgreiningu fylgt í NEST verkefninu.</description>
      <alt>Stella Sigfúsdóttir</alt>
Kvennahlaupið á laugardag
      <description>Kvennahlaupið hefst frá Sporthöllinni á morgun laugardag kl.11. Þetta er 16 árið sem Kvennahlaup ÍSÍ fer fram og eru Sjóvá-Almennar aðalstyrktaraðili hlaupsins. Eins og undanfarin ár þá er búist við mjög góðri þátttöku í hlaupinu hér í Sveitarfélaginu. Það er ekki endilega heimamenn sem hafa skráð sig í hlaupið segir Svafa Mjöll Jónasar hjá Sporthöllinni, það er eins og á síðasta ári, margir aðkomumenn sem hafa skráð sig sem eru bæði fólk á ferðalagi og þeir sem eru í heimsókn hjá ættingjum hér á staðnum. Hægt er að velja um þrjár hlaupaleiðir og er hlaupið fyrir alla aldursflokka. Hlaupaleiðirnar sem verða merktar fyrir hlauparana eru 2,5, 5 km og 7 km. allt innanbæjar. Til að hafa smá tilbreyngu frá því í fyrra er búið að búa til nýjar hlaupaleiðir. Þeir sem ekki hafa skráð sig er bent á að gera það í dag í Sporthöllinni sem er opin til kl. 19 í kvöld eða í fyrramálið frá kl. 9.</description>
Rannsóknir benda til þess að Hornafjörður sé um 4000 ára gamall.
      <description>Einhverjir hafa kannski velt því fyrir sér hvenær Hornafjörður hafi orðið til og það var m.a. efni fróðlegs fyrirlestrar hjá Páli Þór Imsland jarðfræðingi á nýafstaðinni ráðstefnu í Nýheimum. Páll hefur í mörg ár rannsakað náttúrufar og fylgst með þeim breytingum sem hafa orðið hafa í Hornafirði frá fjöru til jökla og fjalla. Segir hann að allar rannsóknir bendi til þess að Hornafjörður sé um fjögur þúsund ára gamall. Páll segir að inn við Hoffellsjökul hafa lengi fundist skeljabrot og skeljar fullar af leir, sem jökullinn hefur rutt upp úr bæli sínu. Einnig hafa fundist nokkrar rostungstennur sem hafa komið upp úr sandinum. Hoffellssandur er myndaður í sjó þegar kemur niður fyrir efstu metrana það sést m.a. af  kísilþörungaskeljum sem eru í sandinum. Í mynni Laxárdals er fornt strandrif, af sömu gerð og fjörurnar sem loka Hornafjörð af frá sjó, og stendur um 40 metrum ofan við núverandi sjávarmál. Allt sýnir þetta að fyrrum hefur opinn sjór náð langt inn til landsins á þessum slóðum. Með öðrum orðum sagt merkir þetta að Hornafjörður, eins og við þekkjum hann, var ekki til. Fjörurnar voru ekki orðnar til og engin strandlón þar fyrir innan.</description>
Hornfirðingur hlaut námsstyrk hjá Landsbankanum
      <description>Landsbankinn verðlaunaði í dag ellefu afburðanemendur á ýmsum skólastigum þegar námsstyrkir bankans voru afhentir fyrir árið 2005. Ríflega 400 umsóknir bárust að þessu sinni. Námsstyrkir Landsbankans voru nú veittir í sextánda sinn. Einn styrkþega var Hornfirðingurinn Sigrún Ólafsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði við Indiana-háskóla. Eiríkur Guðmundsson, móðurbróðir Sigrúnar tók við styrknum við athöfn í Reykjavík í gær. Hlaut hún styrk að upphæð kr. 300.000 kr. Landsbankinn veitti einnig styrki til framhaldsskóla- og iðnnáms á Íslandi, að upphæð kr. 100.000 hver, þann stuyrk hlutu Inga Steinunn Helgadóttir, Menntaskólanum á Akureyri, Hrafnhildur Birgisdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík og Jón Helgi Sveinbjörnsson, Verkmenntaskólanum á Akureyri.</description>
Nýr Hornfirskur frétta og afþreyingarþáttur á SkjáVarpi
      <description>Í gærkvöldi var fyrsti þátturinn af Mastrinu sýndur á SkjáVarpi. Mastrið er staðbundinn frétta- og afþreyingarþáttur þar sem lífið og tilveran í Hornafirði er til umfjöllunar. Þátturinn er sendur er út á dreifikerfi SkjáVarps í Sveitarfélaginu Hornafirði og er hver þáttur um 15-30 mín að lengd. Þeir sem standa að þættinum eru félagarnir Gunnar Auðunn Jóhannsson og Gísli Örn Reynisson. Í þáttunum kennir margra grasa, m.a verður Halldór Steinar með íþróttafréttir, Sindri Ragnars með æsifréttir, Gísli Reynis bíður fólki í sófann hjá sér og spjallar við það um hin ýmsu málefni og að sjálfsögðu verða sagðar fréttir vikunnar, en það er Gunnar Auðunn fréttastjóri sem flytur þær. Í þættinum í gær var Gísli Reynis með í sófanum hjá sér Árna Þorvaldsson, sem er tveggja barna faðir, þrefaldann formann og kennara í Heppuskóla. Árni er formaður Samfylkingarinnar á Höfn, Knattspyrnudeildar Sindra og Kennarasamband Austurlands.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
Sundlaugin lokar tímabundið vegna bilunar
      <description>Sundlaug Hafnar er nú lokuð tímabundið vegna skemmdar í dúk sem klæðir laugina. Að sögn Lars Jóhanns Andréssonar sundlaugarvarðar þá er dúkurinn sem er kominn til sinna ára hefur þurft nokkuð viðhald og þegar gat kemur á hann þá lekur vatnið á bak við dúkinn og er það nokkuð mál að hreinsa vatnið þar og gera við gatið. Búast má við að sundlaugin verði lokuð í nokkra daga á meðan unnið er að viðgerð á dúknum. Daglega koma um 80 til 90 manns í laugina og fer sú tala hækkandi þar á sumarið líður. Svo eru að sjálfsögðu fastagestirnir sem mæta á hverjum morgni. Sundnámskeið fyrir 5 og 6 ára krakka sem er að fara af stað verður haldið þar sem kennslan fer fram í krakkalauginni.</description>
Vinnu við uppgröft húsarústanna í Bæ í Öræfum haldið áfram
      <description>Fornleifafélag Öræfa fékk á þessu ári eina milljón og eitthundrað þúsund kr. styrk til að halda áfram vinnu við uppgröft húsarústanna í Bæ í Öræfum. Seinni hluta maí var svo farið að grafa og hreinsa í rústunum. Að staðaldri voru þarna 12 manns við uppgröftinn, Bjarni Einarsson fornleifafræðingur stjórnandi verksins, einn fornleifafræðingur og átta fornleifanemar úr Háskólanum ásamt þeim Birni Arnarsyni safnverði á Höfn og Hálfdáni Björnssyni á Kvískerjum. Björn segir uppgröftinn  hafa gengið mjög vel og veðrið verið sérlega hagstætt alla dagana. Þegar búið var að ýta moldarlaginu burt með jarðýtu voru hjólbörur notaðar til að keyra vikrinum burt en þarna eru tóftirnar fullar af hreinum vikri. Það er þægilegt að eiga við vikurinn nema þegar hvasst er því þá fer hann að rjúka.</description>
90 fyrirlestrar verða haldnir næstu þrjá daga
      <description>Í morgun var önnur alþjóðlega ráðstefnan um strandrannsóknir sett á Höfn. Að ráðstefnunni standa Hornafjarðarbær, Siglingastofnun Íslands, Háskóli Íslands og samgönguráðuneytið auk prófessors Per Bruun sem lengi hefur fylgst með mannvirkjagerð við strendur Íslands.  Ritstjórar erlendu  fagtímaritanna á sviði strandrannsókna, Journal of Coastal Research og Coastal Engineering, taka þátt í ráðstefnunni.  Ráðstefnan er undir faglegri umsjón Siglingastofnunar Íslands.  Um 125 þátttakendur frá 18 þjóðlöndum taka þátt á ráðstefnunni auk 30 maka. Ráðstefnuna setti Ari Þorsteinsson frá Frumu Hornafirði sem er aðal skipuleggjandi ráðstefnunnar á staðnum.  Auk hans héldu erindi Ragnhildur Hjaltadóttir fyrir hönd samgönguráðherra, Halldóra Jónsdóttir formaður bæjarráðs Hornafjarðar og Hermann Guðjónsson forstjóri Siglingastofnunar.  Síðan fluttu nemendur tónlistarskóla Hornafjarðar nokkur lög.</description>
Skari Guðna í sjómannalagakeppninni á RUV
      <description>Hornfirðingurinn Óskar Guðnason eða Skari Guðna eins og hann var kallaður hér áður fyrr tekur nú þátt í í Sjómannalagakeppni Rásar 2 og Hátíðar hafsins sem fram fer á vef RUV. Lagið heitir Ég er sjómaður hreinn og beinn og er það Hornfirðingurinn Örvar Kristjánsson sem syngur og spilar á harmoníku. Textinn er einnig eftir Skara. Skari var á hátindi frægðarinnar þegar hann spilaði með hljómsveitinni Drekum hér á Höfn. Í hljómsveitinni voru auk hans voru Raggi Meysa, Sæmi Harðar og Kiddi Hjartar. Skari Guðna er einn af betri gítarleikurum sem Höfn hefur alið enda er hann komin af því víðfræga músikgeni Meysalinganna. Hann heimsækir Höfn reglulega þó svo að hann sé fluttur til Árósa í Danmörku.</description>
      <alt>Óskar Guðnason</alt>
Sjómannadagsblað Austurlands komið út
      <description>Ellefti árgangur Sjómannadagsblaðs Austurlands er kominn út og eru efnistök blaðsins fjölbreytt að vanda. Forsíðumynd blaðsins er mynd frá Hornafjarðarhöfn þar sem hún skartar sínu fegursta með Hornafjarðarmánann yfir Vestrahorni. Í blaðinu er meðal annars að finna viðamikla umfjöllun um strand togarans Egils rauða fyrir sléttum 50 árum og frækilega björgun 29 manna úr áhöfninni, viðtal við einsetufrúna á Hesteyri í Mjóafirði, Önnu M. Guðmundsdóttur, og fjölmörg minningabrot, í mynda- og textaformi, frá liðinni tíð á Austurlandi. Í blaðinu er einnig birt brot úr óútgefnum æviminningum Vilhjálms Árnasonar hæstaréttarlögmanns, fæddum á Skálanesi í Seyðisfirði árið 1917, og fjallað um fiskveiðar Færeyinga við Ísland á 19. og 20 öld og margt fleira. Ritstjóri Sjómannadagsblaðs Austurlands er Kristján J. Kristjánsson frá Norðfirði.</description>
Risör og Kungälv  í vinabæjarheimsókn
      <description>Vinabæjarmót hefst í dag. Hornfirðingar bjóða vinum sínum frá Risör í Noregi og Kungälv í Svíþjóð heim. Fulltrúar frá vinabæ Hornfirðinga í Samsö í Danmörku sáu sér ekki fært að mæta að þessu sinni.  Fulltrúar Hornfirðinga taka á móti gestum við Nýheima kl. 13.00 og síðan munu mótsgestir taka þátt í opnun á Jöklasýningu.  Um kvöldið verður haldið upp í Lón þar sem verður grillað. Á morgun verður fundað um ýmiss málefni sem t.d. varða framtíð vinabæjarsamstarfsins. Á laugardaginn munu gestir fylgjast með hátíðarhöldum við bryggjuna og um kvöldið taka þátt í sjómannadagshófinu í Íþróttahúsinu.</description>