Júní
Almannaskarðsgöng opnun
Almannaskarðsgöng opnun
Frá formlegri opnun á göngunum undir Almannaskarð
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

28.06.2005 Júní

Fyrsti bíll án aðstoðar upp Almannaskarðið fyrir 75 árum

Það voru tímamót í samgöngumálum í Hornafirði þegar bíll komst án aðstoðar upp Almannaskarðið fyrir 75 árum. Það var 18. nóvember 1929 að bíll frá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga fór með marga farþega frá Höfn upp í Lón en árið áður hafði reyndar annar vörubíll farið skarðið en þurfti töluverða hjálp, sagði Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar í ávarpi sínu eftir opnun jarðgangnanna undir Almannaskarð. Fram að þessum tíma hafði verið lestargata niður skriðuna en eftir 1930 fór vegurinn smá saman batnandi eftir því sem stórvirkari vinnuvélar komu til sögunnar. Föstudagurinn 24.júní var líka stór dagur í samgöngumálum Hornfirðinga þegar jarðgöngin undir Almannaskarð voru opnuð til umferðar.

Athöfnin hófst með ávarpi Jóns Rögnvaldssonar vegamálastjóra sem þakkaði öllum þeim, sem á einn eða annan hátt komu að gerð þessara jarðgangna, fyrir vel unnin störf og góða samvinnu. Því næst bað hann Sturlu Böðvarsson samgöngumálaráðherra að koma og taka við mannvirkinu. Sturla sagðist, fyrir hönd samgöngumálaráðuneytisins, fagna verklokum við Almannaskarð, hér hefði verið unnið gott verk sem hefði mikla þýðingu fyrir samfélagið og hver einasti hluti vegakerfisins sem endurbyggður væri þjónaði okkur öllum. Ráðherra lýsti svo jarðgöngin undir Almannaskarð formlega opnuð fyrir umferð og sagði ,, megi gæfan fylgja öllum vegfarendum og megi góðar vættir vaka yfir þessu héraði? síðan klippti ráðherra á borðann með góðri aðstoð vegamálastjóra.

Fjöldi fólks var mætt til að fagna opnuninni og náði samfelld bílaröð inn að veginum upp Almannaskarð. Að athöfn lokinni fór gamli Ford-vörubíllinn árg.1930, sem Guðmundur í Þórisdal átti, í broddi fylkingar í gegn um göngin. Veður var eins og best varð á kosið, sólskin, smá gola og hlýtt eins og reyndar hefur verið í öll þau skipti sem einhverjum gangna-áfanga hefur verið fagnað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica