Björgunarskipið Ingibjörg sækir sjúkling um borð í Smáey VE
Björgunarskipið Ingibjörg fór í morgun í sinn fyrsta leiðangur þegar skipið sótti slasaðan sjómann um borð í Smáey VE sem hafði skorist í andliti við að detta ofan í lest skipsins. Útkallið var um fjögur leitið í nótt og var björgunarbáturinn lagður af stað skömmu síðar. Björgunarskipið og Smáey VE mættust síðan skammt austur af Hrollaugseyjum þar sem sjúklingurinn var færður um borð í björgunarskipið og síðan var haldið til Hafnar. Björgunarskipið kom í land með hinn slasaða um 8 leitið í morgun þar sem hann var færður undir læknishendur. Að sögn Jónasar Friðrikssonar hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar gekk ferðin mjög vel, smá undiralda á leiðinni og reyndist skipið mjög vel í alla staði.
Björgunarskipið Ingibjörg er af gerðinni Arun 1108 frá Bretlandi. Það er 42 brúttólestir og búið tveim caterpillar 485 hestafla aðalvélum og ganghraði skipsins um 15 sjómílur.





Skrifa athugasemd