Gamli Ford-vörubíllinn fer fyrstur í gegnum göngin
Göngin gegnum Almannaskarð verða formlega opnuð og tekin í notkun á morgun föstudaginn 24. júní. Athöfnin hefst með ræðu Sturlu Böðvarssonar samgöngumálaráðherra við syðri enda gangnanna. Því næst ekur Óskar Alfreðsson gamla Ford-vörubílnum með skráningarnúmerið Z-19, árgerð 1930 í gegnum göngin og þar með verða þau orðin hluti þjóðvegar 1. Þessi gamli Ford var í eigu Guðmundar bónda í Þórisdal í Lóni. Að lokinni athöfn við göngin mun Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra fara á Hótel Höfn þar sem hann tekur á móti boðsgestum á vegum samgöngumálaráðuneytisins.
Fari eftir spá veðurfræðinga mun verða hið fegursta veður á Suðausturlandi á morgun vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og bjartviðri og hiti allt að 20°C.





Skrifa athugasemd