Mikið um að vera hjá golfklúbbnum
Nú stendur yfir golfnámskeið fyrir börn og unglinga hjá Golfklúbbi Hornafjarðar. Námskeiðin eru ágætlega sótt og ekki leynir sér að það er mikill áhugi á golfinu hjá unga fólkinu og þarna eru á ferðinni margir efnilegir kylfingar segir Guðný Helgadóttir formaður golfklúbbsins.Þá er einnig nýlokið námskeiði hjá fullorðna fólkinu og var það alveg þokkalega sótt og segir Guðný að þeir kylfingar sem voru þar verði að vera duglegir við að æfa sig í listinni. Það er greinilega engin miskunn á þeim bæ. Um helgina verður svo Jónsmessumót sem alltaf er gaman að taka þátt í og Guðný hvetur alla sem mögulega geta beitt kylfunum að mæta nú og taka þátt í skemmtilegu móti, móti sem verður enn skemmtilegra með þátttöku sem flestra þátttakenda. Rétt er að minna félaga á að hafa einhverja óvana með sér til að pútta. Ýmsar þrautir þarf svo að leysa á hringnum.
Á sunnudaginn verður mikið um að vera á golfvellinum því þá ætla konur í klúbbnum að mæta á völlinn og spila Bleika Bikarinn en það er samstarfsverkefni golfklúbbana og krabbameinsfélags Íslands. Þetta verkefni felst í því að konur kaupa pakka sem inniheldur bol og golfbolta og ágóðinn rennur síðan til krabbameinsfélagsins. Vonandi sjá sem flestar konur sér fært að koma og vera með, styrkja gott málefni og hafa gaman af.
Framkvæmdir á nýja vellinum ganga samkvæmt áætlun Unnið er að gerð æfingasvæðis og á að sá í það nú í þessum mánuði. Með tilkomu þess svæðis breytast aðstæður til æfinga til mikilla muna.





Skrifa athugasemd