Júní
Humarkló júní 2005
Humarkló júní 2005
Humarkló júní 2005
Mynd 4 af 21
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21

22.06.2005 Júní

Ógleymanleg ferð að Humarkló

Laugardaginn 11.júní stóð Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu fyrir ferð að Humarkló, sem eru klettadrangar í jöklinum upp af Heinabergsdal á Mýrum. Lagt var af stað frá Flatey á Mýrum kl. 8.00, sextán manns á þrem jeppum og ekið upp að Jöklaseli og þaðan inn á Breiðubungu og síðan til suðausturs í átt að Humarkló. Um kl.13 var ökuferðin eftir jöklinum á enda og þaðan var um tveggja tíma gangur að áfangastaðnum Humarkló. Það var alveg yndislegt að fara eftir jöklinum og veðrið var eins og best varð á kosið sagði Rannveig Einarsdóttir. Síðan var gengið eftir snjóbreiðum og fjallgörðum, göngufæri var gott og við fórum þetta bara í rólegheitum, tókum fullt af myndum og nutum ferðarinnar og útsýnisins. Þarna er nokkuð um sprungur í jöklinum þó við sáum þær ekki en fyllsta öryggis var gætt og við vorum öll með öryggislínu milli okkar. Humarkló er einstaklega fallegir klettadrangar sem standa upp úr jöklinum og þegar búið var að skoða þá, mynda mikið og gera nestinu góð skil var gengið til suðurs fram fjallgarðinn og fram á vörp sem eru innst í Heinabergsdal, síðan fram Heinabergsdal þar sem jepparnir biðu okkar í mynni dalsins.

Gott útsýni var yfir Vatnsdal, Ófærubotna, Snjófjall, Vatnsdalstind, Rótarfjall og Hafrafell. Við vorum komin í Heinabergsdal um klukkan ellefu um kvöldið eftir frábæra ferð segir Rannveig og bætir við að þetta sé ferð sem sé flestum fær og ekki erfið.

Mæting hefur verið góð í ferðir félagsins í sumar og nýir félagar bæst í hópinn. Um Jónsmessuna verður farið út í óvissuna í ca. þriggja tíma ferð sem er ætluð öllum í fjölskyldunni og Rannveig segist viss með að þar verði enginn fyrir vonbrigðum.
Um miðjan júlí verður helgarferð í Vöðlavík,og er það ferð fyrir alla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica