Júní
Fjarnám
Fjarnám
Það er gaman í fjarnámi!

20.06.2005 Júní

Umsóknarfrestur kennaranáms framlengdur

Frestur til að sækja um inngöngu í kennara- og leikskólakennaranám við Háskólann á Akureyri hefur verið framlengdur til 24. júní. Stefnt er að því að nemendahópur verði á Hornafirði, en aðeins er fjarkennt á takmarkaðan fjölda staða hverju sinni. Þetta er því tækifæri sem býðst hugsanlega ekki í bráð aftur. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi. Námið er spennandi og skemmtilegur kostur fyrir þá sem vilja afla sér góðrar háskólamenntunar án þess að flytjast búferlum. Fjarnemar geta nýtt sér góða vinnuaðstöðu í námsverinu í Nýheimum og fengið margvíslega aðstoð við námið hjá Fræðsluneti Austurlands, m.a. námsráðgjöf, aðstoð við gagnaleit og heimildaöflun o.fl.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu háskólans á Akureyri á slóðinni unak.is.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica