Júní
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Himnaríki á jörð/ Heaven on earth
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) [myndasafn]

20.06.2005 Júní

Málþing NEST haldið á Kirkjubæjarklaustri

Málþing NEST verður haldið á Kirkjubæjarklaustri á morgun þriðjudag frá kl.1.00 til kl.17.00. Fundarstjórar verða Stella Sigfúsdóttir verkefnastjóri NEST og Jón Helgason sem setur málþingið. Rannveig Ólafsdóttir ræðir um ELDland, ÍSland: NEST-í ríki Vatnajökuls einnig ávinning fyrstu þverþjóðlegu ráðstefnu NEST í Skotlandi í vor. Stella Sigfúsdóttir ræðir um tækifæri í uppbyggingu sjálfbærrar ferðaþjónustu á Suðausturlandi. Sigurlaug Gissurardóttir og Ólafía Jakobsdóttir kynna vinnuhóp um tengslanet og Stella verður með kynningu vinnuhóps um viðskiptatækifæri.Rannveig Ólafsdóttir verður með kynningu vinnuhóps um þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu og Ragnar Frank þjóðgarðsvörður kynnir þróun náttúruskóla. Að lokinni hópvinnu kynnir Hjalti Þór Vignisson niðurstöðu hennar og verður fundi slitið kl.17.00. Þátttökugjald er kr 2500 og innifalið í því er hádegismatur og kaffiveitingar.

Markmiðið með þessu málþingi segir Stella vera að fá fólk til að koma saman , kynnast innbyrðis og kynna því NEST verkefnið, uppbyggingu og möguleika þess og það sé mikilvægt að allir hagsmunaaðilar taki þátt í þessu málþingi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica