Júní
Lúðuveiðar
Lúðuveiðar
Aflinn kominn í höfn (Mynd BA)
Mynd 2 af 5
1 2 3 4 5

20.06.2005 Júní

Þrír Hornafjarðarbátar eru byrjaðir með lúðulínu

Björn Arnarson safnvörður brá sér í eina lúðuveiðiferð með Unnsteini Þráinssyni á Sigga Bessa en hann er einn þriggja Hornafjarðarbáta sem eru byrjaðir með lúðulínu. Veiðisvæðið er austan við Hrollaugseyjar og hafa veiðar gengið vel. Með Unnsteini á bátnum eru Hólmar sonur hans og Örn Þór sonur Björns, harðduglegir sjómenn. Veiði var góð í þessari ferð og komu þeir með þrjár fullvaxnar lúður, eins og Björn orðaði það, og nokkrar minni. Í þessum túr var sú þyngsta 120 kg. en stærsta lúða sem Unnsteinn hefur veitt vó 218 kg. Þetta er fjórða árið sem Unnsteinn stundar lúðuveiðar og er aðalveiðisvæðið við Hrollaugseyjar og við Ingólfshöfða. Gott verð er fyrir lúðuna sem send er fersk og heil til Englands.

Björn segir að ekki sé neina aðra veiði að hafa með lúðunni þar sem lúðulínan er öll stór í sniðum, önglar stórir og beitan niðurskorin keila eða einhver ruslfiskur af stærri gerðinni og eftir slíku sækjast ekki þessar venjulegu fiskitegundir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica