Endurnýjun á bundnu slitlagi
Undanfarið hefur verið unnið við að endurnýja bundið slitlag á þjóðvegi 1 í Hornafirði. Búið er að leggja á veginn vestan Þorgeirsstaða austur að Jökulsá og hefur 50 km hraðatakmörkun verið aflétt á þeim kafla. Síðan verður slitlag endurnýjað á veginum frá Össurará í Lóni að Hvaldalsá, frá Þvottá í Álftafirði að Geithellnaá og einnig í Hamarsfirði.
Í Öræfum verður slitlag endurnýjað frá Kvíá að Fagurhólsmýri.
Meðan þessar framkvæmdir standa yfir er 50 km hámarkshraði á því svæði sem verið er að endurnýja. Því miður eru margir ökumenn sem ekki virða þessi takmörk og ausa lausagrjóti yfir þá sem þeim mæta og valda oft með því miklu tjóni og er full ástæða til að biðja alla ökumenn að virða hraðatakmörkin og sýna tillitssemi.
´
Lokið er við að leggja bundið slitlag á nýju vegarkaflana sín hvoru megin Almannaskarðsgangna.
Í göngunum er allt að smella saman fyrir opnun þeirra þann 24. júní, það eru bara þessi smá atriði sem týnast til í lokin.





Skrifa athugasemd