Júní
Jesus Christ Superstar leikhópurinn
Jesus Christ Superstar leikhópurinn
Jesus Christ Superstar leikhópurinn

16.06.2005 Júní

Súperstar í Loftkastalanum.

Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu,Tónskóli A-Skaft og Leikfélag Hornafjarðar verða með sýningar á Rokksöngleiknum SUPERSRAR í Loftkastalanum í Reykjavík 18. og 19.júní kl.20.00 .
Rokksöngleikurinn SUPERSRAR var sýndur í Mánagarði í vor við miklar vinsældir og fengu leikarar og allir þeir sem að sýningunni komu mikið lof fyrir leik sinn og sýningarnar í heild. Leikstjóri er Gunnar Sigurðsson
Leikendur eru nemendur FAS og með hlutverk Súperstar fer Ingi Steinn Þorsteinsson, Maríu leikur Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Nanna Halldóra Imsland leikur Júdas, systkinin Þórður Ingvarsson og Ingibjörg eru Pílatus og Heródes. Ágúst Elvarsson er Símon lærisveinn og með hlutverk prestanna fara Elvar Bragi Kristjónsson, Emil Örn Morávek og Sigfinnur Mar Þrúðmarsson. Með hlutverk lærisveinanna fara Aino Raiskila, Alexandra Ingvarsdóttir, Chiharu Kawai og Goran Basrak. Það er full ástæða til að hvetja alla Hornfirðinga á stór Reykjavíkursvæðinu sem og aðra sem möguleika hafa á að fara í Loftkastalann og sjá þessa frábæru sýningu.

Hægt er að panta miða í gegnum vefinn á www.loftkastalinn.is og smella á myndina á Nönnu Halldóru

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica