Júní
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004
Mynd 1 af 3
1 2 3

16.06.2005 Júní

17. Júní á Hornafirði.

Hátíðardagskráin hefst kl.13.30 með því að allir sem mögulega geta eru hvattir til að koma á planið við Miðbæ og þaðan verður skokkað eða gengið, allt eftir því sem hverjum hentar, inn á túnið við Hótel Höfn þar sem Haukur Þorvaldsson setur samkomuna.
Nýstúdentinn Steinunn H. Harðardóttir flytur ávarp, Guðlaug Margrét syngur við undirspil Andra Snæs og Braga Fannars því næst verður ávarp fjallkonunnar flutt.
Að þessum atriðum loknum verður slegið á léttari strengi og m.a. munu starfsmenn Skinneyjar-Þinganess keppa við bæjarstarfsmenn í reiptogi, boðhlaup verður þar sem Papós og Bestfiskur keppa einnig starfsmenn 11-11 gegn starfsmönnum Krónunnar.
Ýmis önnur skemmtilegheit verða þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi svo sem:
Grillveisla, hjólabraut, húllahringir, snú-snú, andlitsmálning, sölubás, mótorhjól, hestar, fótboltavöllur, blakvöllur, skallatennis og kassaklifur.
Bíó með 45 mínútna teiknimynd fyrir alla fjölskylduna verður kl. 17.00 og aukasýning kl 18.00.
Útidansleikur verður á planinu við Íþróttahúsið frá kl. 20.00 til 22.00 og mun hljómsveitin Parket sjá um fjörið.

Ef ekki viðrar vel til útihátíðar fer skemmtunin fram í íþróttahúsi Hafnar.
Það er Litboltafélag Hornafjarðar sem sér um 17. júní hátíðarhöldin að þessu sinni og þeir félagar vilja endilega hvetja konur og karla til að mæta í íslenska þjóðbúningnum.
Mætum öll á þjóðhátíðina með góða skapið og skemmtum okkur saman.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica