Júní
Kvennahlaup 2005
Kvennahlaup 2005
Guðbjörg, Elinborg og Svafa Mjöll
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

14.06.2005 Júní

Elsti þátttakandinn í kvennahlaupinu 82 ára

Kvennahlaupið fór fram sl. laugardag, viku fyrr en verið hefur. Hér á Höfn var kvennahlaupið í umsjá Svövu Mjallar Jónasar í Sporthöllinni og styrkt af Sjóvá. Góð mæting var og alls hlupu 123 konur mismunandi vegalengdir frá 2,5 km. Elsti þátttakandinn í kvennahlaupinu í ár var Elínborg Pálsdóttir 82 ára, og fékk hún fallegan blómvönd frá Bláa Blóminu, bæði fyrir þátttökuna og að vera aldursforsetinn í hópnum. Fyrstar til að ljúka hlaupinu urðu þær Heba Björg Þórhallsdóttir, Dagbjört Ýr Kiesel og Iðunn Tara Ásgrímsdóttir.

Svava mjöll var ánægð með þátttökuna ekki síst þar sem mikið var um ferðir fólks annað bæði í sambandi við íþróttamót og fleira um helgina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica