Júní
Rollur á þjóðvegi
Rollur á þjóðvegi
Árlega valda kindur miklu tjóni á ökutækjum. Þessar kindur voru staddar við Lónsafleggjarann.

14.06.2005 Júní

Árlega valda kindur miklu tjóni á ökutækjum

Blessaðar sauðkindurnar, sem oft eru nefndar því óvirðulega nafni ,,vegarollur? eru farnar að gæða sér á gróðrinum meðfram veginum frá Höfn inn að Lónsvegamótum. Þær eru fljótar að notfæra sér frelsið sem ónýtar girðingar veita þeim og alltaf er besta grasið á vegarbrúnunum. Árlega hafa kindur valdið miklu tjóni á ökutækjum þegar þær hafa ætt upp á veginn í veg fyrir umferðina sem er mjög mikil og oft hröð á þessum vegarspotta. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir bæjarstarfsmenn þurfa að smala og fjarlægja þær kindur sem séu við og á veginum bæjar megin við pípuhliðið en þeir skipti sér ekkert af þeim sem séu utan þess, það sé mál fjáreigendanna. Skemmist bifreið við ákeyrslu á búfé bæta tryggingafélögin ekki tjónið nema bifreiðin sé með kaskótryggingu og venjulega er þá um talsverða eigin áhættu að ræða.

Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að lítið væri að frétta af girðingarframkvæmdum Vegagerðarinnar nema það að verið væri að girða með veginum við Almannaskarðsgöngin en hvað aðrar girðingar varðar á þessu svæði þá væri það landeigenda að halda við sínum girðingum en því miður væri ekki eins gott lag þar á og þyrfti að vera og á þeim málum yrði að finna lausn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica