Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 4-0
Um helgina voru 3 leikir á Sindravöllum, á föstudaginn komu Egilsstaðastúlkur og spiluðu gegn meistaraflokki kvenna Sindra. Leikurinn endaði 5-0 Hattarstúlkum í vil. Fyrsti tapleikur stelpnanna í sumar. Á laugardaginn spiluðu svo meistaraflokkur karla gegn Hamarsmönnum frá Hveragerði. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 4-0. Fyrsti sigurleikurinn þeirra í sumar. mörkin skoruðu. Sindri Ragnarsson, Einar Smári Þorsteinsson, Steinar Kristjánsson og Kristinn Þór Guðlaugsson. 3.fl.karla fengu svo heimsókn frá Haukamönnum á laugadaginn, sá leikur endaði 3-3. og náðu Haukamenn að jafna á síðustu mínútunum. 4.flokkur karla gerði ágætis ferð til Reykjavíkur á föstudaginn en þá léku þeir við Fylkismenn og töpuðu þeim leik naumlega. Á laugardaginn léku strákarnir svo við KR-inga og sigruðu þann leik örugglega 6-1
Í gær fóru stelpur úr 4.flokki til Seyðisfjarðar og tóku létta æfingu á Huga-stelpum, en leiknum lyktaði með 10-1 sigri Sindra í vil.





Skrifa athugasemd