Hornfirðingur hlaut námsstyrk hjá Landsbankanum
Landsbankinn verðlaunaði í dag ellefu afburðanemendur á ýmsum skólastigum þegar námsstyrkir bankans voru afhentir fyrir árið 2005. Ríflega 400 umsóknir bárust að þessu sinni. Námsstyrkir Landsbankans voru nú veittir í sextánda sinn. Einn styrkþega var Hornfirðingurinn Sigrún Ólafsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði við Indiana-háskóla. Eiríkur Guðmundsson, móðurbróðir Sigrúnar tók við styrknum við athöfn í Reykjavík í gær. Hlaut hún styrk að upphæð kr. 300.000 kr. Landsbankinn veitti einnig styrki til framhaldsskóla- og iðnnáms á Íslandi, að upphæð kr. 100.000 hver, þann stuyrk hlutu Inga Steinunn Helgadóttir, Menntaskólanum á Akureyri, Hrafnhildur Birgisdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík og Jón Helgi Sveinbjörnsson, Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Styrki til háskólanáms á Íslandi, að upphæð kr. 200.000 hver, hlutu Ingibjörg G. Jónsdóttir, doktorsnemi í fiskifræði við Háskóla Íslands, Jóhanna Einarsdóttir, doktorsnemi við læknadeild Háskóla Íslands og Halla Hrund Logadóttir, stjórnmálafræðinemi við Háskóla Íslands. Styrki til háskólanáms erlendis, að upphæð kr. 300.000 hver, hlutu auk Sigrúnar: Álfheiður Hrönn Hafsteinsdóttir, sem er í MBA námi við Yale-háskóla og Karl Ægir Karlsson, doktorsnemi í sálfræði við Iowa-háskóla. Styrki til listnáms, að upphæð 200.000 hver, hlutu Davíð Brynjar Franzson, doktorsnemi í tónsmíðum við Stanford-háskóla og Melkorka Ólafsdóttir stundar framhaldsnám í nútímaflautuleik í Konservatoríinu í Amsterdam.
Í dómnefnd sátu Guðfinna S. Bjarnadóttir, sem jafnframt var formaður, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi og Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur. Fulltrúar Landsbankans voru Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, og Kristín Rafnar.





Skrifa athugasemd