Nýr Hornfirskur frétta og afþreyingarþáttur á SkjáVarpi
Í gærkvöldi var fyrsti þátturinn af Mastrinu sýndur á SkjáVarpi. Mastrið er staðbundinn frétta- og afþreyingarþáttur þar sem lífið og tilveran í Hornafirði er til umfjöllunar. Þátturinn er sendur er út á dreifikerfi SkjáVarps í Sveitarfélaginu Hornafirði og er hver þáttur um 15-30 mín að lengd. Þeir sem standa að þættinum eru félagarnir Gunnar Auðunn Jóhannsson og Gísli Örn Reynisson. Í þáttunum kennir margra grasa, m.a verður Halldór Steinar með íþróttafréttir, Sindri Ragnars með æsifréttir, Gísli Reynis bíður fólki í sófann hjá sér og spjallar við það um hin ýmsu málefni og að sjálfsögðu verða sagðar fréttir vikunnar, en það er Gunnar Auðunn fréttastjóri sem flytur þær. Í þættinum í gær var Gísli Reynis með í sófanum hjá sér Árna Þorvaldsson, sem er tveggja barna faðir, þrefaldann formann og kennara í Heppuskóla. Árni er formaður Samfylkingarinnar á Höfn, Knattspyrnudeildar Sindra og Kennarasamband Austurlands.
Einnig var Halldór Steinar með Holu í höggi sem er golfkennsla til að aðstoða þá sem vilja taka fyrstu skrefin í golfi. Sýnt var frá opnun nýju Jöklasýningarinnar þar sem Gunnar Auðunn tók m.a. viðtal við Halldór Ásgrímsson Forsætisráðherra. Halldór sagðist vera mjög ánægður með sýninguna og taldi að sýningin breytti heilmiklu fyrir Hornfirðinga, og sagði hann að jökullinn hefði alltaf verið tákn Hornafjarðar enda Hornafjörður umvafinn jöklinum annarsvegar og Hornafjarðarmáninn hinsvegar, það stæði alltaf eftir í minningu um Hornafjörð. Mjög athyglisvert viðtal. Einnig var sýnt frá sýningunni sem er alveg einstök. Steinar var með íþróttafréttir og sagt var frá því hvað gerst hefur undanfarið og hvað framundan er hjá Sindra.
Þetta eru þættir sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.





Skrifa athugasemd