Júní
Óskar Guðnason
Óskar Guðnason
Óskar Guðnason

03.06.2005 Júní

Skari Guðna í sjómannalagakeppninni á RUV

Hornfirðingurinn Óskar Guðnason eða Skari Guðna eins og hann var kallaður hér áður fyrr tekur nú þátt í í Sjómannalagakeppni Rásar 2 og Hátíðar hafsins sem fram fer á vef RUV. Lagið heitir Ég er sjómaður hreinn og beinn og er það Örvar Kristjánsson sem syngur og spilar á harmoníku og Gunnar Karlsson (Gunnsi Kalla) spilar á bassa, báðir Hornfirðingar. Textinn er eftir Skara. Skari var á hátindi frægðarinnar þegar hann spilaði með hljómsveitinni Drekum hér á Höfn. Í hljómsveitinni voru auk hans voru Raggi Meysa, Sæmi Harðar og Kiddi Hjartar. Skari Guðna er einn af betri gítarleikurum sem Höfn hefur alið enda er hann komin af því víðfræga músikgeni Meysalinganna. Hann heimsækir Höfn reglulega þó svo að hann sé fluttur til Árósa í Danmörku.

Þeir sem vilja hlusta á lögin sem taka þátt og greiða atkvæði geta farið inn á vef RUV með því að klikka hér. Atkvæðagreiðslunni líkur í dag kl. 15:30.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica