Júní
Hornafjörður í tungsljósi
Hornafjörður í tungsljósi
Hornafjarðarhöfn skartar sínu fegursta með Hornafjarðarmánann yfir Vestrahorni.

03.06.2005 Júní

Sjómannadagsblað Austurlands komið út

Ellefti árgangur Sjómannadagsblaðs Austurlands er kominn út og eru efnistök blaðsins fjölbreytt að vanda. Forsíðumynd blaðsins er mynd frá Hornafjarðarhöfn þar sem hún skartar sínu fegursta með Hornafjarðarmánann yfir Vestrahorni. Í blaðinu er meðal annars að finna viðamikla umfjöllun um strand togarans Egils rauða fyrir sléttum 50 árum og frækilega björgun 29 manna úr áhöfninni, viðtal við einsetufrúna á Hesteyri í Mjóafirði, Önnu M. Guðmundsdóttur, og fjölmörg minningabrot, í mynda- og textaformi, frá liðinni tíð á Austurlandi. Í blaðinu er einnig birt brot úr óútgefnum æviminningum Vilhjálms Árnasonar hæstaréttarlögmanns, fæddum á Skálanesi í Seyðisfirði árið 1917, og fjallað um fiskveiðar Færeyinga við Ísland á 19. og 20 öld og margt fleira. Ritstjóri Sjómannadagsblaðs Austurlands er Kristján J. Kristjánsson frá Norðfirði.

Á höfuðborgarsvæðinu er meðal annars hægt að nálgast Sjómannadagsblað Austurlands í verslunum Pennans ? Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu, Grandakaffi Grandagarði og Kænunni í Hafnarfirði. Á Akureyri er blaðið fáanlegt í Pennanum ? Bókvali í Hafnarstræti og í Pennanum á Glerártorgi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica