Júní
Risör og Kungälv í vinabæjarheimsókn
Vinabæjarmót hefst í dag. Hornfirðingar bjóða vinum sínum frá Risör í Noregi og Kungälv í Svíþjóð heim. Fulltrúar frá vinabæ Hornfirðinga í Samsö í Danmörku sáu sér ekki fært að mæta að þessu sinni. Fulltrúar Hornfirðinga taka á móti gestum við Nýheima kl. 13.00 og síðan munu mótsgestir taka þátt í opnun á Jöklasýningu. Um kvöldið verður haldið upp í Lón þar sem verður grillað. Á morgun verður fundað um ýmiss málefni sem t.d. varða framtíð vinabæjarsamstarfsins. Á laugardaginn munu gestir fylgjast með hátíðarhöldum við bryggjuna og um kvöldið taka þátt í sjómannadagshófinu í Íþróttahúsinu.
Vinabæjarmótinu lýkur svo á sunnudaginn.





Skrifa athugasemd