Júní
Útskriftarnemendur
Útskriftarnemendur
Útskriftarnemendur af skrifstofubraut og nýstúdentar ásamt skólameistara.

02.06.2005 Júní

100 stúdentar frá FAS

Fréttatilkynning

Laugardaginn 21. maí s.l. var útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Að þessu sinni útskrifuðust 8 stúdentar, 5 útskrifuðust af skrifstofubraut og 16 af almennri braut. Í hópi nýstúdenta var hundraðasti stúdent skólans en þeir fyrst voru útskrifaðir 1992. Dux Scolae að þessu sinni var Hulda Rós Sigurðardóttir.

Á með fylgjandi mynd eru útskriftarnemendur af skrifstofubraut og nýstúdentar ásamt skólameistara. Nöfn talið frá vinstri, efri röð: Einar Haraldsson, Ágúst Elvarsson, Finnur Smári Torfason, Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir, Guðrún Valgeirsdóttir, Anna Lilja Ottósdóttir, Helena Ingvadóttir, Signý Ingvadóttir, Jóanna Sigurðardóttir og Eyjólfur Guðmundsson Neðri röð frá vinstri: Sigríður Bára Steinþórsdóttir, Hulda Rós Sigurðardóttir, Björg Sigurjónsdóttir og Steinunn Hödd Harðardóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica