Búast er við um 150 manns frá 30 löndum komi til Hafnar
Alþjóðlega ráðstefnan um rannsóknir á náttúrufari hafs og strandar, öryggi sjófarenda og mannvirki á ströndinni hefst n.k. sunnudag. Búast má við um að 150 manns frá 30 löndum muni koma hingað í tengslum við ráðstefnuna. Ráðstefnan verður haldin í Nýheimum. Að ráðstefnunni standa Hornafjarðarbær, Siglingastofnun Íslands, Háskóli Íslands og samgönguráðuneytið. Ritstjórar erlendra fagtímarita á sviði strandrannsókna taka þátt í ráðstefnunni, sem verður undir faglegri umsjón Siglingastofnunar Íslands. Margir áhugaverðir fyrirlestrar verða á ráðstefnunni og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst á vefslóðinni icecoast.is. Þátttakendur fá afhenta bók og geisladisk með öllum fyrirlestrunum.
Meðal þess efnis sem íslenskir fræðimenn munu leggja áherslu á eru rannsóknir við suðurströnd Íslands, s.s. rannsóknir á ferjulægi við Bakkafjöru, strandrofi við Vík í Mýrdal og við Jökulsá á Breiðamerkursandi og hönnun sjóvarnagarða. Áherslan verður lögð á að kynna hönnun og byggingu brimvarnargarða, einkum bermugarða, bæði hér heima og erlendis. Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á heimasíðu. www.icecoast.is.





Skrifa athugasemd