Byrjað á undirbúningi að nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót
Í sumar verður byrjað á undirbúningi að nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót og færslu þjóðvegar eitt. Byrjað verður á umhverfismati og eru þar þrjár leiðir sem skoðaðar verða. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir brýnasta verkefnið í vegamálum hér á Suðausturlandinu vera úrbætur á veginum í Hvalnes og Þvottárskriðum. Fyrir nokkrum dögum var verið að skoða skriðurnar og skoða hugsanlega möguleika en ekki er komin ákvörðun um hvernig að þeim verður staðið en undirbúningsvinna hefst í sumar. Reynir segir að þetta verði bæði kostnaðarsamt og erfitt verkefni. Skriðurnar eru ekki á vegaáætlun fyrr en 2007 en hugsanlega verður hægt að bjóða verkið út næsta haust. Það styttist í kosningar og oft flýta þær fyrir framkvæmdum, eins og allir vita.
Reynir segir að hjá þeim vegagerðarmönnum gangi nú allt út á að rykbinda vegi og hefla og er það mjög óvenjulegt hér um slóðir. Vegagerðin er nýbúin að láta malbika Víkurbraut frá vegamótum Hafnarbrautar út að afgreiðslusvæði H.P. og sona, einnig smá kafla á móts við Olís.





Skrifa athugasemd